Breiðdalsá
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur

 

Breiðdalsá - Gisting

Á bökkum Breiðdalsár í landi Eyja er nýtt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Átta tveggja manna herbergi, hvert með sér baðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internettengingu. Þar af bíður elegant svíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfan sig. Í húsinu er gufubað og þaðan útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arin er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Útsýni yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins.

Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu.

Hið nýja stórglæsilega Veiðihús að Eyjum

Gisting og fæði á mann á dag kr. 19.800.

Silungsveiðimenn í maí og júní geta gist í uppábúnum rúmum og hafa aðgang að eldhúsinu. Kostar það kr. 7.800 á mann nóttin, en tilboð til hópa. Einnig möguleiki á fæði þá ef þess er óskað sem kostar aukalega.

Yfir vetrartímann og allt til 1. júlí má njóta góðra stunda í veiðihúsinu bæði í dekurfríum, á ráðstefnum eða fundum.

Leitið sértilboða fyrir hópa.
Fjarlægð frá Reykjavík: 615 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: 80 km



Sjá myndir af veiðihúsinu Eyjar



Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is