Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur

 

Breiðdalsá silungsveiði
Góð veiði á sjóbleikju, urriða og sjóbirting

Breiðdalsá

Frábær morgunveiði af sjóbleikju við þjóðvegsbrúna þann 11. maí 2009

Silungasvæðið okkar sívinsæla í Breiðdalsá verður veitt að venju frá 1. maí til 30. júní með sex stöngum og þremur stöngum eftir það til 30. september. Helgast það af því að fyrri hluta veiðitímans er einnig víðáttumikið svæði með staðbundnum urriða í Breiðdalsá ofan Beljanda og því rúmt um stangirnar, jafnvel þó að þær standi allar vaktina í sjóbleikjunni neðst á svæðinu.

Þetta er fyrir löngu orðinn afar vinsæll pakki hjá okkur og hópar eru í vaxandi mæli að leita eftir því að taka sömu daga að ári. Vissulega eru veður rysjótt snemma á vorin en fiskurinn er til staðar og getur tekið grimmt, auk þess sem menn falla gersamlega fyrir veiðihúsinu okkar að Eyjum og mögnuðu umhverfinu í Breiðdalnum. Eindæma náðugt er að dvelja þar ef kuldinn nístir, skella sér þá bara í gufuna eða heita pottinn!

Fast verð er allt veiðitímabilið, kr. 7.000 á stöng á dag. Sjóbleikjuveiðin gaf 353 bleikjur á þessu ári, ívið færri en árið 2008, en aftur á móti var meira um vænar bleikjur en mörg undanfarin ár. Urriða- og sjóbirtingsveiði er einnig á svæðinu og veiddust 287 af þeim og þar af vænir í bland, og hafa þeir farið stækkandi undanfarin sumur. Hægt að kaupa heila eða hálfa daga eða 2─3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa.

Veiðihús: Á bökkum Breiðdalsár, í landi Eyja sem eru neðarlega við ána, er nýlegt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Átta tveggja manna herbergi, hvert með sérbaðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internettengingu. Þar af bíður glæsisvíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfa sig. Í húsinu er gufubað og þaðan er útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa eru með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arinn er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd er með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Glæsilegt útsýni er yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins. Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu. Síminn þar er 475 6776.

Gisting er skylda í veiðihúsinu í maí og júní á kr. 7.800 rúmið sem er hóflegt verð miðað við þann lúxus sem er innifalinn. Tilboðsverð eru í boði fyrir hópa. Flestir kjósa að elda sjálfir og hafa allan aðbúnað til þess en ef óskað er geta hópar fengið tilboð með fullu fæði og þjónustu. Ekki er skylda að gista í veiðihúsinu eftir að laxveiði hefst 1. júlí og ef laust er á laxveiðitímabilinu má kaupa þar fyrsta flokks fæði og gistingu á kr. 19.800 á mann á dag.

Breiðdalsá silungsveiði - Almennar upplýsingar
Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: 615 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: 80 km
Veiðisvæði:

Breiðdalsá 1.maí-30.júní: Vorveiði á sjóbleikju, urriða og sjóbirtingi er leyfð þá með sex stöngum frá veiðimörkum ofan Lambabakkahyls að brú á þjóðvegi, ásamt urriðaveiði í Breiðdalsá ofan Efri-Beljanda, í Skipakíl og Norðurdalsá ofan Móhyls. .
1.júlí-30.september: Þrjár stangir eru leyfðar þá og veiðisvæðið frá og með Lambabakkahyl að brú á þjóðvegi ásamt Skipakíl.

Tímabil: 1.maí - 30.september.
Veiðileyfi:

Hægt að kaupa heila eða hálfa daga, eða 2-3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa.

Daglegur veiðitími: Sveigjanlegur, en hámark 12 klst. á sólarhring eftir dagsbirtu og óskum veiðimanna. Brottfarardag síðasta morguninn er veitt til kl. 12:00.
Fjöldi stanga: Leyfðar eru 3-6 stangir.
Verð:

Stöng á dag kr. 7.000

Veiðireglur: Allt agn leyft, fluga, maðkur og spónn. Hirða má allan afla nema skylt er að sleppa aftur laxahrygnum 65 cm og stærri.
Vinsælar flugur: Heimasæta, Súddi, BBB, Selma Dröfn, Bleik og Blá,Hvítur Nobler, Orange Nobler og Orange Krafla fyrir sjóbleikjuna. Black Ghost, Nobler, Þingeyingur og ýmsar þurrflugur og kúluhausar fyrir urriðann.
Veiði síðastliðið ár:

353 sjóbleikjur og 287 urriðar/sjóbirtingar

Umsjónarmaður/veiðivörður:

Sigurður Staples (Súddi) Sími 660 6894

Sjá kort af veiðisvæðinu.

Breiðdalsá

Vænn urriði úr efri hluta Breiðdalsár 16. maí 2009

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is