Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
Minnivallalækur

 

Breiðdalsá silungsveiði - Gisting

Á bökkum Breiðdalsár í landi Eyja er nýtt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Átta tveggja manna herbergi, hvert með sér baðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internet tengingu. Þar af bíður elegant svíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfan sig. Í húsinu er gufubað og þaðan útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arin er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Útsýni yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins.

Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu.


Hið nýja stórglæsilega Veiðihús að Eyjum


Gisting fyrir silungsveiðimenn í maí og júní er kr. 7.800 á dag, innifalið uppábúin rúm og handklæði og veiðimenn geta eldað sjálfir. Einnig mögulegt að silungsveiðimenn gisti í júlí-september meðan húsrúm leyfir en þá er skyldufæði. Ef óskað er geta hópar í maí og júní fengið tilboð með fullu fæði og þjónustu, tilvalið fyrir fyrirtæki eða smærri hópa sem vilja fulla þjónustu.

Yfir vetrartímann og allt til 1. júlí má njóta góðra stunda í veiðihúsinu bæði í dekurfríum, á ráðstefnum eða fundum.

Leitið sértilboða fyrir hópa.
Fjarlægð frá Reykjavík: 615 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: 80 km

Sjá myndir af veiðihúsinu Eyjar



Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is