Breiðdalsá
Ein besta stórlaxaá landsins
 |
| Bryggjuhylur og umhverfi er einstaklega fallegt veiðisvæði |
Breiðdalsá hefur verið að koma inn sem ein besta stórlaxaá landsins og sumarið 2009 endurspeglar það einnig. Allmargir laxar af stærðinni 10─12 kg veiddust og fjölmargir 5─9 kg einnig, þar af ein hrygna sem var áætluð 13,5 kg áður en henni var sleppt aftur í ána. Kanski var það stærsti laxinn á landinu árið 2009? Þetta er árangurinn af þrotlausri stórlaxaræktun okkar. Áin var dálítið lakari heldur en í fyrra, gaf nú 782 laxa, meðal annars vegna þess að aldrei þessu vant bar á vatnsleysi í september sem oftar en ekki hefur verið gríðarlega drjúgur veiðimánuður í Breiðdalsá. En einnig var minna af smálaxi en oft áður. Metið er frá 2006 var 937 laxar. Við bíðum því enn eftir að rjúfa þúsund laxa múrinn og teljum að 2010 sé upplagt ár til að ná þeim áfanga enda heppnuðust sleppingar mjög vel s.l. vor og væntingar miklar. Sem fyrr erum við með þokkalega hátt sleppihlutfall á veiddum laxi þegar taldir eru saman slepptir laxar og laxar sem settir eru lifandi í klakkistur.
Óvíða veiða menn í fallegri á en Breiðdalsá og óvíða í fallegra umhverfi. Og engin spurning er um að óvíða gista menn síðan í glæsilegra veiðihúsi en sumarhöllinni okkar að Eyjum. Sumum þykir langt að aka alla leið austur til okkar en öðrum finnst það bara auka á ánægjuna að aka langan veg til framandi og fallegra landshluta. Þeim fer fjölgandi og nokkur hópur hefur það auk þess fyrir sið að fljúga til Egilsstaða og taka þar bílaleigubíl.
 |
|
Veiðihús: Á bökkum Breiðdalsár í landi Eyja, sem eru neðarlega við ána, er nýlegt veiðihús sem býður upp á eina glæsilegustu gistiaðstöðu á landinu. Þar eru átta tveggja manna herbergi, hvert með sérbaðherbergi, gervihnattasjónvarpi og internettengingu. Þar af bíður glæsisvíta þeirra sem virkilega kunna að vera góðir við sjálfa sig. Í húsinu er gufubað og þaðan er útgengt í heitan pott. Borðstofa og setustofa eru með konunglegum aðbúnaði þar sem glæsilegur arin er áberandi ásamt uppstoppuðum fuglum og fiskum á veggjum. Stór verönd er með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds.
Glæsilegt útsýni er yfir ómótstæðilegan fjallahring Breiðdalsins.
Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu. Síminn þar er 475 6776.
Skyldufæði og gisting á mann á dag kostar kr. 19.800.
| Breiðdalsá -
Almennar upplýsingar |
| Staðsetning: |
Fjarlægð frá Reykjavík: 615
km
Fjarlægð frá Egilsstöðum: 80 km |
| Veiðisvæði: |
Öll Breiðdalsá ofan Lambabakkahyls ásamt Suðurdalsá, Tinnudalsá og Norðurdalsá. |
| Tímabil: |
1. júlí - 30. september |
| Veiðileyfi: |
Yfirleitt þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis, en þó í einstaka hollum tveir dagar.
|
| Daglegur veiðitími: |
Daglegur veiðitími 1. júlí - 31. júlí kl. 7-13 og 16-22 en frá 1. ágúst til 10. september 15-21 eftir hádegi. Eftir það 15-20 daglega eftir hádegi. Brottfarardag síðasta morguninn skal veitt til kl. 12:00. |
| Fjöldi stanga: |
Leyfðar eru 6-8 stangir. |
| Verð: |
Stöng á dag á bilinu kr. 23.800 - 98.800. |
| Veiðireglur: |
Fluga, maðkur og spónn en fluguveiði eingöngu frá miðjum júlí og í ágúst. Hirða má allan afla nema skylt er að sleppa aftur hrygnum 65 cm og stærri eða setja í klakkistur. Æskilegt er þó að sleppa öllum hrygnum ef hægt er og hængum frá 75 cm. |
| Vinsælar flugur: |
Svört Frances, Rauð Frances, Friggi, Black and Blue, Snælda, Sunray Shadow. |
| Veiði síðastliðið ár: |
782 laxar |
| Umsjónarmaður/veiðivörður: |
Sigurður Staples (Súddi) Sími 660 6894 |
Sjá heildarveiði
1981 - 2009
Sjá heildarveiði
á veiðistöðum 1997-2009
Sjá myndband
Sjá kort af
veiðisvæðinu.
 |
Séra Gunnlaugur Stéfánsson með stórlax úr Eyjakrókum 20. júlí 2009.
|
|
|