Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Minnivallalækur

 

Jökla I og Fögruhlíðará silungsveiði
Vorveiði og Fögruhlíðarós silungsveiði

Vorveiði1. júní – 30. júní

Silungsveiðin er vel þekkt í Fögruhlíðará, sérstaklega í Fögruhlíðarósi, sjávarlóni neðst í ánni. Þar upplifa margir ævintýri í bullandi sjóbleikjugöngum á hverju ári. Þarna er leyfilegt að veiða að nóttu til ef þannig stendur á sjávarföllum og er haft fyrir satt að kynngimagnað geti verið að standa vaktina þarna við þær aðstæður. Oft hefur vorið og fyrrihluti sumars gefið sérstaklega vel en auðvitað veiðist silungur líka allt sumarið og haustið líka og þá líka urriði og aðeins sjóbirtingur. 1. júní  ─ 30. júní er veitt í Fögruhlíðarós ásamt Kaldá, Fossá, Laxá og neðri hluta Jöklu með 4─6 stöngum, sérstaklega fyrir silung, þó að auðvitað geti lax hugsanlega líka slæðst með á  þessum tíma. Hægt að kaupa heila eða hálfa daga eða 2─3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa.

Engin skyldugisting er í veiðihúsinu Hálsakoti en skylt að koma þar við og skrá afla í veiðibók  sem þar verður.

Verð á stöng á dag er kr. 9000.

 


Glæsileg stórbleikjuveiði af svæðinu!

Fögruhlíðarós 1. júlí ─ 30. september

Við höfum ákveðið að brjóta upp Jöklupakkann okkar og selja á komandi sumri tvær stangir í Fögruhlíðarósi og neðsta hluta árinnar, frá brú og niður að ósnum, sem sérsvæði í júlí og til 30. september. Engin skyldugisting er í veiðihúsinu Hálsakoti og fast verð á stöng á dag verður kr. 9.000 en veiðimenn verða að skrá afla í veiðihúsinu í lok veiðidags. Hægt að kaupa heila eða hálfa daga eða 2─3 daga holl, allt eftir óskum veiðimanna og stöðu lausra leyfa. Veiðitími verður sveigjanlegur innan þess ramma að aðeins má veiða tólf stundir enda skipta fallaskipti miklu máli þarna. Margir hafa upplifað ógleymanlegar stundir við Fögruhlíðarós þegar ligjandinn er um hánótt, sem er dagsbjört um hásumarið sem kunnugt er, en það er afar sérstök stemming að veiða sjóbleikju á fallaskiptum að nóttu til. Mjög góð bleikjuskot voru í ósnum á liðinni vertíð og mjög vænar bleikjur í bland. Engin skyldugisting er í veiðihúsinu Hálsakoti en skylt að koma þar við og skrá afla í veiðibók  sem þar verður.

Vorveiði og Fögruhlíðarós silungsveiði - Almennar upplýsingar

Staðsetning: Fjarlægð frá Reykjavík: ca. 700 km
Fjarlægð frá Egilsstöðum:  ca. 40 km
Veiðisvæði: Jöklusvæðið ásamt Fögruhlíðarós í júní, en eftir það Fögruhlíðará og ós neðan brúar við þjóðveg.
Tímabil:

1. júní – 30. September.

Veiðileyfi:

Stakir dagar eða hálfir dagar og einnig tveir eða þrír dagar í senn frá hádegi til hádegis eftir óskum veiðimanna.

Daglegur veiðitími: Sveigjanlegur, en hámark 12 klst. á sólarhring eftir dagsbirtu og óskum veiðimanna. Brottfarardag síðasta morguninn er veitt til kl. 12:00.
Fjöldi stanga:

Leyfðar eru á bilinu 4-6 stangir í júní en 2 stangir eftir það.

Verð:

Stöng á dag kr. 9.000

Veiðireglur: Allt agn leyft, fluga, maðkur og spónn. Hirða má allan afla, nema skyllt er að sleppa aftur laxahrygnum 70 cm og stærri.
Vinsælar flugur: Heimasæta, Súddi, BBB,Selma Dröfn, Bleik og Blá,Hvítur Nobler, Orange Nobler og Orange Krafla fyrir sjóbleikjuna. Black Ghost, Nobler, Þingeyingur og ýmsar þurrflugur og kúluhausar fyrir urriðan.
Veiði síðastliðið ár:

267 sjóbleikjur og 64 urriðar/sjóbirtingar.

Umsjónarmaður/veiðivörður: Guðmundur Ólason 471 1019 og 660 6893

Jökla II

Efri hluti Jöklu ofan ármóta Hnefilsdalsár ásamt þverám. Tilraunasvæði með sex stöngum, talinn nokkur silungur á svæðinu og einnig aukin laxveiðivon vegna seiðasleppinga. Verð á stöng á dag er kr. 3.000.- og veiðitími 1. júlí ─ 30. september. Leyfilegt að veiða með flugu, maðki og spón.

 

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is