Breiðdalsá
Breiðdalsá silungsveiði
Hrútafjarðará
Laxá í Nesjum
Jökla og Fögruhlíðará
J og F silungsveiði
     Veiðileyfi
     Gisting
     Myndir
Minnivallalækur

 

Jökla I og Fögruhlíðará silungsveiði - Gisting
EKKI er skyldugisting fyrir veiðimenn í veiðihúsinu sumarið 2010!

Undir kjarrivaxinni hlíð er ný og glæsileg gistiaðstaða í Veiðihúsinu Hálsakoti í Jökulsárhlíð rétt við Kaldá. Um er að ræða 130 fm þjónustuhús ásamt þremur smærri gistihúsum sem eru tengd við meginhúsið með verönd. Hvert gistihús er með tveimur tveggja manna herbergjum og hafa einnig öll sex herbergin sér baðherbergi. Því geta samtals 12 manns gist þar í uppábúnum rúmum og handklæðum sem eru innifalinn í veiðileyfinu.
Frábær aðstaða er í veiðihúsinu, rúmgóð setu-og borðstofa með arin, stórt eldhús, forstofa með salerni, vöðlu-og þurrkherbergi, fiskmóttaka og fl.
Stór verönd með grilli og góðri aðstöðu til útiborðhalds. Gott útsýni til Kaldár, Jöklu og Dyrfjalla.

Gisting

Allur aðbúnaður er fyrsta flokks í Hálsakoti

Hundahald er EKKI leyfilegt í húsinu.

Hálsakot

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is