SKOT Í HRÚTAFJARÐARÁ!
11.september 2003
Glímt við lax í Hrútastreng, veiðihúsið í baksýn.

Hrútafjarðará: Holl sem hætti í gær fékk 20 laxa á þrem dögum er áin sjatnaði eftir mikil flóð. Töldu þeir töluvert af laxi í ánni, meðal annars síðasta morguninn sáu þeir 30 laxa í Bálki og náðu tveimur þeirra. Annars hefur veiðin verið upp og ofan í sumar eftir vatnsmagni og eru tæplega 140 laxar komnir á land. Bleikjuveiðin verið mun betri en í fyrra. Veitt verður til 20. september.

Breiðdalsá: Ljóst er að smálaxagöngur hafa ekki skilað sér í Breiðdalsá þetta sumarið og er ástandið víða svipað annarsstaðar á norður - og austurlandi. Tæplega 160 laxar hafa veiðst, en töluverður hluti þeirra er stórlax, t.d. fengust tveir 17-18 punda nýlega. Veiði hefur helst verið á svæði 1 þar sem lax úr gönguseiðasleppingum veiðist mest, og einnig í Norðurdalsá sem er ofarlega á vatnasvæðinu. Bleikjuveiðin hefur verið mjög góð í sumar. Veitt verður til lok septembers, svo væntanlega verður lokatalan nálægt 200 löxum þetta árið, sem er töluverð niðursveifla frá árinu 2002.

Frá Skammadalsbreiðu, en þar hefur veiði aukist í sumar vegna sleppitjarnar sem staðsett er við veiðistaðinn. Kátir veiðimenn með þrjá laxa úr Skammadalsbreiðu.

Laxá í Nesjum: Nú hafa veiðst 65 laxar þar og veiðimenn eru nokkuð sáttir við veiðina þar í sumar. Þó er hún háð vatni og hafa komið ágæt skot þegar það er í lagi. Í september hefur borið töluvert á sjóbirtingi, sérstaklega á neðsta veiðistaðnum Ármótahylur. Stærsti laxinn sem veiðst hefur er 18 pund. Veitt út september.

Stórlax úr Gljúfrinu, ofarlega í Laxá.

Grenlækur: Greinilegt er að sjóbirtingsveiðin á Seglbúðasvæðinu er í uppsveiflu og er nú mun meira af sjóbirtingi en í fyrrasumar. Sérstaklega í Snúningshyl og stöðum þar í kring. Stærsti sjóbirtingurinn er 12 pund. Teljarinn losar 400 fiska, og hafa nokkrir mjög stórir farið þar í gegn. Vegan forfalla eru nokkrar stangir lausar síðustu viku september, á topptíma.

Veiðmaður kastar fyrir stórbleikjur í Dýlækjarkrók í Grenlæk.

Tungulækur: Töluvert af vænum sjóbirtingi byrjaði að koma nýlega í Tungulæk og hafa veiðimenn séð mikið af fiski á efsta veiðistaðnum Breiðunni. Oft stórir boltar sem velta sér þar á yfirborðinu. Nýr fiskur sést einnig í Opinu við Skaftá flesta daga á leið inn í lækinn.

Efsti hluti Tungulækjar, fossinn í baksýn.

Minnivallalækur: Enn er veiði í Minnivallalæk, einn veiðimaður fékk 10 fiska einn daginn fryir stuttu, en þó er fiskur oft erfiður til að taka og þurfa veiðimenn að hafa fyrir því að finna réttu fluguna. Örfáir daga lausir í september, en veiði lýkur í lok mánaðarins.

Við Minnivallalæk, veiðistaðurinn Húsaflúð efst. .

Hvolsá og Staðarhólsá: Í rigningunni undanfarið hefur veiði glæðst, sérstaklega verða menn varir við að laxinn er farin að dreifa sér um árnar. Um helgina komu 5 laxar á land. Lausar stangir á virkum dögum nú í september.

Veitt neðarlega í Hvolsá, tilvalin fjölskylduveiði.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is