Opnun Breiðdalsár tókst vel, veiddust 3 laxar fyrsta daginn og nú eru komnir 10 laxar á land, flestir 10-13 pund!
Glæsilegasta veiðihús landsins opnað!
Á föstudagskvöld 4 júlí var efnt til stórfagnaðar í nýja Veiðihúsinu á Eyjum, húsið opnað formlega af Þresti Elliðasyni og síðan vígt af séra Gunnlaugi Stéfánssyni sem jafnramt er formaður veiðifélags Breiðdæla. Um 100 manns mættu og eiga vart orð yfir glæsileika hússins.
 Hrúta gengur vel!
Nú er hann mættur í Hrútu! Um 10 laxar veiðst og menn sjá töluvert af laxi og góð bleikjuveiði.
Laxa í Nesjum
Tveir laxar hafa veiðst þar og nokkrir aðrir sést ofarlega í ánni. Óvenju snemmt fyrir Laxá, lofar góðu. |