STÓRURRIÐAVEIÐI!
14.júní 2003

Veiðihúsið Lækjamót er allt hið glæsilegasta og er staðsetning frábær við veiðistaðinn Húsabreiða.

Minnivallalækur: Veiði í Minnivallalæk í apríl var svona upp og ofan. Ekki voru seld veiðileyfi að ráði þann mánuð vegna þess að nýtt veiðihús var ekki klárt og iðnaðarmenn þurftu að nota eldra hús til gistinga á meðan á framkvæmdum stóð. Þó var reytingsveiði er reynt var. Minnivallalækur gerðist svo frægur að komast á síður enska veiðitímaritsins “Trout and Salmon” en Jon Beer fékk hann í opnun í byrjun apríl eins og sást í síðustu frétttum okkar. Í maí hefur “hitnað í kolunum” og þá sérstaklega síðustu hollum sem hafa verið að gera það gott. Eru veiðimenn sammála um að mun meira sé nú af fiski í læknum en oft áður, sérstaklega stórfiski. T.d. var eitt nýlegt holl með nokkra fiska 6-8 punda á þurrflugu! Einn fiskur datt af í löndun sem var mun stærri en aðrir og vanir veiðimenn töldu 12-15 punda fisk nærri lagi! Nú hafa veiðst um 200 fiskar og töluvert af því fiskur yfir 5 pund.

NÝTT! Hollið 10-12 júní fékk aldeilis einstaka stórrurriðaveiði. Þrír stærstu voru einn 8 punda úr Hesthyl, síðan einn 12 punda úr djúpa pottinum í Hólmakvíslum, en útslagið gerði síðasta morguninn við Arnarhólsbreiðu. Þar setti veiðimaður í stórfisk á fluguna Heimasætu sem er betur þekkt sem bleikjufluga. Tók viðureignin 45 mínútur og var tekin video af átökunum og löndun fisksins. Var hann áætlaður um 18 pund, um 87 cm langur og óhemjuþykkur. Þeir verða varla stærri þetta sumarið í ár, en aldrei að vita!

NÝTT VEIÐIHÚS TEKIÐ Í NOTKUN OG LANGTÍMASAMNINGUR: Þann 20. maí var tekið í notkun glæsilegt veiðihús sem er staðsett við Húsabreiðu. Þar koma saman Skarðslækur og Klofalækur og heitir veiðihúsið Lækjamót. Fjögur tveggja manna herbergi, tvö baðherbergi, borðstofa og setustofa með einstöku útsýni yfir lækinn og til Heklu og nágrennis. Stór verönd með heitum potti. Jafnframt hefur verið samið um leigu á veiðirétti Minnivallalækjar til næstu 10 ára og hlökkum við til að geta boðið upp á þetta einstaka veiðisvæði með þessari lúxusgistingu. Verður frábær gistiaðstaða til framtíðar! Mikið bókað en þó örfá holl laus í sumar

Tungulækur: Um 400 sjóbirtingar veiddust í Tungulæk í vor sem er ágæt veiði. Þó er það minna en væntingar stóðu til og er ljóst að sjóbirtingur fór fyrr til sjávar en venjulega. Í byrjun apríl veiddist vel en veiði minnkaði síðan. Flest holl voru að fá á bilinu 5-20 fiska á tveim dögum. Ánægjulegt var þó hvað mikið af stórfiski veiddist, fjöldi fiska var á bilinu 60-90 cm að lengd. Mest veiddist neðst í Tungulæk og í Skaftá rétt neðan við ármótin (Opið). Siðustu daga hefur verið vart við bleikju, sem virðist vera að koma í fyrra fallinu. Fyrstu sjóbirtingar koma venjulega seint í júlí, en þó var veiðimaður var við tvo stóra birtingu nýlega á efsta veiðistaðnum á Breiðunni upp við foss. Þar hefur ekki sést fiskur í vor og hugsanlega nýr fiskur á ferðinni? Í júlí gengur alltaf eitthvað af laxi ásamt bleikju svo veiðimöguleikar eru góðir yfir sumarið líka. Fyrstu sjóbirtingarnir þá eru líka oft af stærri gerðinni. Mikil ásókn hefur verið í veiðileyfi í Tungulæk, en þó eru stöku holl á lausu.

Grenlækur: Veiði hefst í Seglbúðasvæðinu 18. júní næstkomandi. Nú þegar hafa bleikjur sést fyrir neðan teljarann og í Snúningshyl. Nokkrar þeirra voru engir smáfiskar, vanir menn töldu þær jafnvel 10+ pund! Verður spennandi að fylgjast með veiðinni fyrstu vikurnar, en þá er oft mjög góð stórbleikjuveiði. Ennþá möguleiki á stöngum hér og þar yfir veiðitímann. Tilboð fyrir hópa. Glæsileg gisting. Spyrjið um nánari upplýsingar.

Hvolsá og Staðarhólsá: Vorveiði hefur verið stunduð aðallega um helgar og hefur verið reytingsveiði, þá aðallegar í lóninu á neðsta veiðistaðnum. Hefur bleikjan líka verið stærri þetta vorið en oft áður, lofar góðu. Stöku holl á lausu þetta sumarið.

Hútafjarðará: Hún verður opnuð 1. júlí og verður spennandi að sjá hvernig gengur. Um 8000 gönguseiði af stofni árinnar eru nú í sleppitjörn við Hamarshyl neðarlega í ánni, og er það töluvert meira magn en sleppt var sl. ár. Hrútan er nánast uppseld þetta árið, en hugsanlega losna 2-3 dagar.

Breiðdalsá: Góð bleikuveiði hefur verið í Breiðdalsá nú í maí og júní þrátt fyrir að ekki hafi verið mikið stundað af veiðimönnum. Einnig hafa rigningar og mikið vatn suma daga valdið minni veiði síðustu vikuna. Nú eru aðstæður betri og í gær komu góð skot og væn bleikja 2-3 pund algeng. Reyndar sáu menn lík lax í gær við brúna á þjóðveginum sem er neðsti veiðistaðurinn á vatnasvæðinu, lofar góðu svona snemma. Einnig hafa veiðst um 70 urriðar á efri svæðum. Laxveiðitíminn hefst í byrjun júlí og hafa opnanir verið góðar sl. ár. Mikið selt en stöku stangir á lausu. Seiðasleppingar hafa gengið vel, og meira magni verið sleppt þetta vor en áður, eða um 80.000 gönguseiði. Stefnt er að sleppingu 100.000 seiða eða meira árlega á næstu árum.

NÝJA VEIÐIHÚSIÐ VIÐ EYJAR Á ÁÆTLUN: Bygging veiðihússins í Breiðdalsá gengur samkvæmt áætlun. Nú hefur verið gengið frá glæsilegri verönd og mikið verður lagt í að gera húsið sem þægilegast fyrir veiðimenn. Þeir sem séð hafa húsið eru sammála um að annað eins hús hafi varla verið byggt yfir veiðimenn. Sjón er sögu ríkari!

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is