| Lokatölur úr veiðiám okkar |
20.október 2003 |
 |
| Lífleg taka í sleppitjörninni við Harmarshyl í Hrútu. |
|
Hrútafjarðará: Þegar talið var úr veiðibók kom í ljós að veiðin var ívið minni en í fyrra, eða 155 laxar. Þó telja menn að meira hafi verið af laxi í ánni en þá, en þurrkatíð og erfið skilyrði í ágúst setti oft strik í reikninginn. Niðursveiflan er þó minni milli ára en í flestum öðrum norðlenskum ám þetta sumarið og er bjartsýni á að veiði aukist á næsta ári í Hrútafjarðará þar sem sleppingar voru auknar mikið í vor, eða í 7000 gönguseiði úr 1,700 árið áður. Stærsti laxinn var 19 pund. Bleikjuveiðin jókst á milli ára, eða 263 sem færðar voru til bókar. Stærsta bleikjan var 5 pund, en einnig var töluvert af 3-4 punda bleikjum í aflanum. Réttarstrengur var sem fyrr besti veiðistaðurinn, en staðir eins og Langhólmahylur og Maríubakki gáfu líka ágætlega. Dregið var á til klakköflunar og fengust 8 hrygnur sem ættu að tryggja það að allt að 20.000 gönguseiði og töluvert af sumaröldum seiðum verði sleppt á næstu árum. En einn stærsti lax sumarsins veiddist einnig í ádrátt, 20 punda hængur úr Réttarstreng! Þeir stóru eru enn til í Hrútu, en nokkrir slíkir sáust í sumar. |
| Breiðdalsá: Lokatölur eru 202 laxar og er þetta því fyrsta niðursveiflan síðan sleppingar hófust árið 1997, en stöðugur uppgangur hafði verið síðan það ár. Þó eru veiðistaði í nágrenni stærstu sleppitjarna að gefa svipaða veiði og í fyrra, og má ætla að göngur úr náttúrulegum stofni árinnar hafi brugðist einna helst, t.d. svæði 2 og 4 fyrir ofan og neðan Beljanda fossa gáfu mjög lítið. Þó er ljóst að heimtur sleppiseiða eru í lægri kantinum. Stærsti laxinn var einn 19 punda, en fjöldi stórlaxa er jafnvel meira en í fyrra sem var þó gott stórlaxaár. Í gegnum teljarann á laxastiganum í Efri-Beljanda fóru eingöngu upp 40 laxar og fengust 10 laxar þar fyrir ofan sem þýðir 25% veiðiálag á það svæði. Er forvitinilegt að vinna úr gögnunum sem nýi teljarinn gefur og má áætla að veiðiálag sé töluvert hærri á öðrum veiðisvæðum Breiðdalsár. Sleppifjöldi seiða þetta vorið er yfir 70.000 sem er aukning milli ára svo við teljum að þetta horfi til betri vegar með veiði næsta árs. En stóra fréttin er það að nú er til ráðstöfunar allt að 120.000 seiði af stofni Breiðdalsár fyrir vorið 2004 og verður stefnt að því að slíkum fjölda verði sleppt árlega eftir það. Klakkveiði þetta haust gekk vel og í heildina náðust 32 hrygnur. Bleikjuveiðin var ágæt í sumar, 631 og allt að 5 pund stærst. Einnig veiddist vel af urriða eða 579, mikil aukning þar. Silungsveiðin hefst 1. maí á næsta ári og bíðst silungsveiðimönnum að gista í nýja Veiðihúsinu Eyjum þá á hóflegu verði. Laxveiði hefst síðan 1. júlí að vanda og vil ég ítreka að þá leggst niður sérstök silungsveiði, heldur verður hún innifalin með laxveiðinni. |
 |
| Lífleg taka í sleppitjörninni við Harmarshyl í Hrútu. |
|
 |
Silungsveiðimönnum vorið 2004 gefst tækifæri á að gista í nýja stórglæsilega veiðihúsinu á hóflegu verði áður en laxveiðitímabilið hefst. |
 |
| Stórlax úr Laxá í Nesjum. |
|
Laxá í Nesjum: Þessi á er að stimpla sig inn sem laxveiðiá í kjölfar árlegra gönguseiðasleppinga. Samtals veiddust 88 laxar, sem er aðeins minni veiði en 2002, en vel viðunandi miða við sleppingar. Það kom einnig skemmtilega á óvart hve mikið var af sjóbirtingi í haust, en samtals fengust 560 sjóbirtingar og urriðar. Einnig 60 bleikjur sem er óvenjulegt. Má búast við miklu af þessarri tveggja stanga á næsta sumar, enda voru sleppingar þrefaldaðar í vor er samtals 18.000 gönguseiðum var sleppt. Heimtur hafa verið um og yfir 1% á stöngina svo samkvæmt því ættu allt að 200 laxar að veiðast þar næsta ár. |
| Grenlækur: Veiði jókst á milli ára, en samtals fengust tæplega 600 fiskar á Seglbúðasvæðinu. Var það blandaður afli af sjóbirtingi, bleikju og staðbundnum urriða. Var sjóbirtingur að ganga síðusta dagana og virðist sem sjóbirtingsstofninn sé aftur í uppsveiflu eftir nokkur mögur ár. |
 |
| Að veiðum í Grenlæk Seglbúðum. Hið stórglæsilega veiðihús er í baksýn. |
|
 |
| Örn Sigurhansson með stóran sjóbirting úr klakveiði í Tungulæk. |
|
Tungulækur: Tæplega 600 sjóbirtingar veiddust þetta árið í Tungulæk. Þar af 400 í vorveiði og því gaf haustveiðin tæplega 200 birtinga. Mikið vatn var til vandræða framan af sumri en skilyrði voru betri er leið á haustið. Mikið af birting var þá á Breiðunni, efsta veiðistaðnum og margir stórir. Einnig var reytingur á öðrum stöðum og við Skaftá. Í haust veiddust um 30 fiskar sem voru á bilinu 10-18 pund og er það líklega með því besta á landinu varðandi stærð sjóbirtinga. Við lok veiðitíma var dregið á Breiðuna og nokkur pör flutt upp fyrir foss til hrygningar og líka til klakköflunar. Var það allt stórfiskur sem náðist á bilinu 8-13 pund að stærð. |
| Minnivallalækur: Samtals 510 fiskar veiddust í Minnivallalæk og komu smáskot í september í stórfiski en þá veiddust nokkrir stórir hængar allt að 12 pund. Venjulegar straumflugur virkuðu þá aftur best í staðinn fyrir minni flugur sem mikið eru notaðar á sumrin. Stærsti fiskur ársins var 18 pund. Veiði mun hefjast aftur 1. apríl á næsta ári. |
 |
| Við Viðarhólma, en sá veiðistaður gaf vel í sumar. |
|
 |
| Góð bleikjuveiði úr Hvolsá. |
|
Hvolsá og Staðarhólsá: Tæplega 500 bleikjur veiddust og 41 lax kom á land í Hvolsá og Staðarhólsá. En töluvert meira var af fiski en þessar tölur gefa til kynna, því að í Lóninu safnaðist saman mikið af fiski sem tók illa. Einnig var veiði lítið stunduð í september, en oft hafa komið góð skot á þeim tíma. |
NÝTT! Vetrargisting: Nú getum við boðið upp á tvo frábæra gistimöguleika yfir vetrarmánuðina í glænýjum veiðihúsum. Veiðihúsið Eyjar í Breiðdal er fimm stjörnu lúxusgisting til að njóta góðra stunda í dekurfríum, á ráðstefnum eða fundum. Veiðihúsið Lækjamót er tilvalið fyrir fjölskyldur/vini sem vilja njóta útivistar utan borgarmarka. Sjá nánari upplýsingar á vef okkar undir "Gisting".
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|