| VEIÐIFRÉTTIR HÉÐAN OG ÞAÐAN |
30.júlí 2003 |
 |
| Sigurður Ólafsson með þann stærsta úr Hrútu, 19 pund úr Réttarstreng. |
|
Hrútafjarðará: Mjög góð veiði hefur í Hrútafjarðará undanfarna daga. Helgarhollið tók á tveim dögum 15 laxa þar af einn 19 punda stærst. Gott vatn enda hefur rignt á heiðum, ákjósanleg skilyrði. Nú eru komnir tæplega 50 laxar á land, nokkrir stórir en þó aðallega smálax sl. daga. Mun meira veiðist líka af bleikju heldur en sl. ár, og eru þær farnar að veiðast viða á neðri hluta árinnar. Stærstu bleikjur eru um 5 pund. Áin uppseld í sumar. |
| Breiðdalsá: Reytingsveiði hefur verið í Breiðdalsá, þá aðallega stórlax og eru 45 laxar komnir á land þar. Er beðið eftir því að smálaxagöngur komi inn líkt og víðar annarsstaðar á norður - og austurlandi. Bleikjuveiðin hefur verið góð í sumar og eru hún líka farin að veiðast ofar í ánni. Óhætt er að segja að nýja veiðihúsið hefur slegið í gegn, gestir hafa vart átt orð yfir aðstöðunni. Örfáar stangir lausar í sumar. |
 |
| Fjör í heita pottinum í veiðihúsinu, og stórlax nýkomin í hús úr Breiðdalsá! |
|
 |
Nú hefur verið settur upp laxateljari í fossinn Efri-Beljanda, komnir 25 laxar í gegn og þegar um miðjan júlí veiddist fyrsti laxinn þar fyrir ofan, en aldrei hefur veiðst lax svo snemma sumars þar. |
 |
| Veiðimenn við efstu veiðistaði Laxár, í gljúfrinu. Nokkrir laxar voru þar en tóku ekki þann daginn. . |
|
Laxá í Nesjum: Átta laxar hafa veiðst þar og vatnið er gott. Vel er bókað í ánna, en þó eru örfá laus holl. |
| Grenlækur: Mun meiri veiði hefur verið á Seglbúðasvæðinu en í fyrrasumar, mikið af stórri bleikju, einnig vænn urriði á neðstu stöðum og sjóbirtingur farin að koma fyrr en venjulega. Sést hefur til stórra birtinga á ferð upp ánna og nokkrir hafa veiðst nú þegar. Í Tungulæk hafa líka fyrstu birtingar veiðst, allt að 10 pund og verður spennandi að fylgjast með sjóbirtingsveiðinni á næstu mánuðum í báðum þessum ám. Laus holl á stangli hér og þar ennþá. |
 |
| Veiðimenn fyrir utan veiðihúsið á Seglbúðasvæðinu í Grenlæk |
|
 |
| Glæsilegur urriði úr Minnivallalæk. |
|
Minnivallalækur: Fínn gangur hefur verið í Minnivallalæk í sumar, en þó er fiskur oft erfiður til að taka og þurfa veiðimenn að hafa fyrir því að finna réttu fluguna. Þurrflugan er sterk ef veður leyfir, annars virka oft litlar púpur. Veiðimenn mjög ánægðir með nýja veiðihúsið, frábært að fylgjast með fiski vaka fyrir utan húsið á Húsabreiðu. Að mestu fullselt í ánna, en eyður í september. |
| Hvolsá og Staðarhólsá: Vatnsleysi hefur aðeins háð veiði þar, en þó hefur verið ágæt veiði á köflum í bleikjunni. Nokkrir laxar hafa veiðst, og veiðimaður taldi 30 laxa ganga inn í lónið neðst á vatnasvæðinu í gær. Með næstu rigningu gæti orðið fjör fyrir vestan. Örfá laus holl í sumar |
 |
| Veiðihúsið í Hvolsá og Staðarhólsá. |
|
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|