Loksins er söluskrá okkar komin út fyrir árið 2003!
Söluskráin fyrir árið 2003 sýnir glöggt að Veiðiþjónustan Strengir er vaxandi fyrirtæki á veiðileyfamarkaðnum með fjölbreytt úrval veiðileyfa fyrir lax-og silungsveiði. Sérstaklega hefur framboð á góðri silungsveiði aukist þar sem gisting og allur aðbúnaður er fyrsta flokks og eru nokkrir góðir valkostir þar.
Það er sérstakt gleðiefni að geta í fyrsta sinn boðið hinn rómaða Tungulæk á almennan veiðileyfamarkað. Einnig er ánægjulegt að veiði er í stöðugri uppsveiflu í Minnivallalæk, Breiðdalsá og Laxá í Nesjum og verður spennandi að fylgjast með framvindunni í þessum veiðiám.
 Nú er í byggingu eitt glæsilegasta veiðihús landsins í Breiðdalsá og mun það koma væntanlegum veiðimönnum skemmtilega á óvart, líkt og þeim sem fóru á Seglbúðasvæðið í Grenlæk sumarið 2002. Áttu gestir fá orð til að lýsa aðbúnaði þar og hafa margir bókað aftur þrátt fyrir að veiðin hafi mátt vera meiri í Grenlæk síðastliðið sumar.
Hrútafjarðará var skemmtileg nýjung hjá okkur árið 2002 og veiðin þar á uppleið aftur. Búast má við miklu þegar seiðasleppingar fara að hafa áhrif þar. Þegar hefur mikið verið bókað í Hrútafjarðará fyrir sumarið af fastahollum.
Hvolsá og Staðarhólsa eru alltaf vinsælar veiðiár, hóflegt verð og ein besta fjölskylduveiðin sem við bjóðum upp á.
SÉRTILBOÐ!
Við viljum vekja athygli á því að væntanleg er bók í byrjun mars sem heitir "The Atlantic Salmon Atlas". Er um að ræða glæsilega veiðibók með umfjöllun um allar helstu laxveiðiár heims, bæði hér á landi sem og í Rússlandi, Skotlandi, Írlandi, Kanada, Noregi og víðar. Allar upplýsingar á einum stað! Hún verður 286 síður og þar af prýða 150 litmyndir bókina. Höfundur er Roy Arris, sem býr hér á landi og hefur fengist meðal annars við leiðsögn í okkar veiðiám. Hann var lengi blaðamaður hjá tímaritinu "Salmon, Trout and Sea-trout" í Bretlandi og hefur viðað að sér efni í bókina í mörg ár.
Verð verður á bilinu 6.500-7000 krónur, en þeir sem bóka og greiða fyrir 10. febrúar fá hana heimsenda fyrir 5.500 krónur! Hafið samband við okkur ef þið viljið nálgast þessa bók á afsláttarverði, eða við höfundinn sjálfan í rarris@binet.is og gsm 861 2084 fyrir 10 febrúar.
Veiðiþjónustan Strengir og Internetið
Við viljum vekja athygli á glæsilegri heimasíðu okkar http://www.strengir.is
Fróðleg og glæsileg síða á íslensku ásamt fleirri tungumálum. Myndbandaskot úr helstu veiðiám okkar ásamt glæsilegum myndum prýða þessa síðu. Veiðikort af flestum veiðisvæðum. Hægt er að sækja þar um veiðileyfi beint í sérstöku bókunarkerfi. Yfirlit yfir laus leyfi og fréttir af veiðisvæðum okkar.
Póstlisti: Sendið okkur netfang og heimilisfang til að komast á póstlista okkar!
Sala veiðileyfa
Sala veiðileyfa er á skrifstofu okkar að Smárarima 30 í Grafarvogi. Sími og fax er 567 5204 og gsm 660 6890.
Pósthólf númer 12024, 132 Reykjavík.
Netfang er ellidason@strengir.is
Greiðslukortaþjónusta Visa-Eurocard.
Einnig verður hægt að fá upplýsingar um veiði og veiðileyfi hjá Erni Sigurhanssyni í síma 660 6892.
Kort af veiðisvæðum fást á skrifstofunni.
Ég óska öllum veiðimönnum fengsælar vertíðar og verið velkomin veiðisumarið 2003." |