6. júlí 2004
HRÚTA, BREIÐDALSÁ OG GRENLÆKUR OPNA MEÐ STÆL  

Tveir laxar á fyrstu vakt og fiskur víða í hyljum voru skilaboðin frá þeim sem opnuðu Hrútafjarðará í lok síðustu viku. Síðan eru fleiri laxar komnir á land og nokkrar rígvænar bleikjur að auki. Þetta eru góð tíðindi, því Hrútan er síðsumarsá sem er oft þung snemma sumars.

Einnig verður að segjast, að Breiðdalsá hafi byrjað skemmtilega, þar var að vísu óveiðandi fyrsta daginn vegna vatnavaxta, en er veiðimenn kíktu á Efri Beljanda morguninn eftir, var talsvert af flóðvatninu komið til hafs og áin álitlegri. Enda settu menn snarlega í fjóra laxa, þar af tvo boltalaxa, en því miður slitu þeir sig allir lausa, þeir stóru þegar þeir voru komnir hálfir á þurrt! Síðan hafa fyrstu laxarnir veiðst og horfur bara góðar með framhaldið. Enn eru auk þess að koma góð skot í sjóbleikjuveiðinni.

 

Laxá í Ađaldal
Fossbrún í Laxá í Aðaldal

Nesveiðar í Laxá litu ágætlegar út í opnun og vart við laxa, nokkrir komnir á land, en mikil sól sl. daga hafa gert veiðiskilyrði erfið.

Þá hefur silungsveiðin á Seglbúðasvæði Grenlækjar verið með miklum ágætum og fyrsta hollið með 50 fiska, mest af því stórbleikju, 3 til 6 punda, en slangur af staðbundnum urriða í bland. Síðan hafa hollin verið að fá góða veiði og heildartalan komin í þriggja stafa tölu. Héðan af má fara að búast við sjóbirtingum í bland við staðbundna fiskinn.

Erlendir veiðimenn hafa gert það gott í Minnivallalæk á örsmáar þurrflugur og púpur, en engin stórfiskur yfir 4 kg komin enn á land.

Lax komin á land í Hvolsa og Staðarhólsá, en lítið vatn gerir veiði erfiða.

Lausar stangir á næstu dögum:

Minnivallalækur 8-10 júlí allar 4 stangir

Breiðdalsá 11-14 júlí - 3 stangir og ein stöng 14-17 júlí.

Laxá í Aðaldal Nesveiðar 15-18 júlí ein stöng.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is