15 . september 2004
Metveiði!  

Veiðin hefur verið frábær í laxveiðiám okkar, Breiðdalsá, Hrútafjarðará, Nesveiðar í Aðaldal og Laxá í Nesjum, sérstaklega núna í september eftir aðbyrjaði að rigna að ráði.

Í Breiðdalsá hafa veiðst núna 580 laxar og þar af veiddust 35 á einum degi mest í september, og er það metveiði í ánni bæði í heildarveiði og í dagsveiði . Veitt verður út september og má búast við að lokatölur verði hátt í 700 laxar þegar upp verður staðið. Frábærar heimtur af gönguseiðasleppingum skýra meginhluta þessarar veiði, enda mikið veiðst í nágrenni sleppitjarna á veiðisvæðum.

Veiði á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal hefur aldeilis tekið kipp í september, frábær stórlaxaveiði og sumar stangirnar að fá 4-5 laxa yfir daginn. Um 370 laxar hafa veiðst í Nesveiðum, sem er það besta í nokkur ár þar. Margir stórlaxar 5-7 kg og 3 laxar 10 kg eða meira verið veiddir sl viku og sleppt aftur, en lengdarmældir áður 100-104 cm. Alls hafa 10 laxar verið í þessum stærðarflokki í sumar samkvæmt veiðibók og er óvíða hægt að finna jafnmarga stórlaxa í bókum annarsstaðar á landinu. Veiði lýkur næstu daga.

Júlíus Guðmundsson leiðsögumaður með 100 cm hæng úr Skerflúðum á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal fyrir viku síðan. Var sleppt en áætlaður um 10 kg!.

Mesta veiði sem um getur í Hrutafjarðará er nú staðreynd, nú hafa um 560 laxar veiðst þar en mest hefur það verið áður 540 fyrir 15-20 árum þegar einnig var leyft að veiða á maðk í ánni. Þar sem lítið vatn hefur oft verið vandamál í sumar og eingöngu fluguveiði er þetta glæsileg veiði og ef aðstæður hefðu verið góðar hefði mátt veiða mun meira en þetta. Hollin hafa verið að fá upp undir 40 laxa í góði vatni í september og veiðimenn sjá mikið af laxi í Hrútu. Veidd til 20 september. Engin vafi á að seiðasleppingar okkar eru að skíra hluta veiðinnar, og verður spennandi að sjá hvað reynslan verður í framtíðinni af þeim.

Laxá í Nesjum hefur gefið 160 laxa sem er metveiði í ánni og þegar rignir koma góð skot. Sjóbirtingur farin að sjást líka. Stefnir í 200 laxa veiði enda veitt út september, sem er frábær veiði fyrir þessa tveggja stanga á.

Hvolsá og Staðarhólsa hafa tekið kipp í rigningum í september, eitt hollið var með 14 laxa og slatta af bleikju og önnur holl hafa nú gert ágæta veiði þar fyrir vestan. Um 60 laxar hafa veiðst og ágæt bleikjuveiði en nánari tölur liggja ekki fyrir.

Seglbúðasvæðið í Grenlæk hefur gefið mun meiri veiði en í fyrra , sérstaklega á sjóbirting og verður veidd til 20 október.

Loksins komu þeir stóru á land í Minnivallalæk, hópur í byrjun vikunnar fékk nokrraurriða allt að 5-6 kg sem eru stærstu fiskar sumarsins. Þeir tóku Noblera á sökklínum í dýpstu hyljum árinnar. Veidd verður út september.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is