....en fyrst er það vorið. Við hjá Strengjum erum nú að kynna ótrúlega góða valkosti í vorveiði!
 |
Ef við erum aðeins að tala um apríl, þá höldum við okkur við Minnivallalæk. Þar eigum við reyting af lausum stöngum. Vorið er frábær tími, stórurriðinn er þá sérstaklega gírugur í straumflugur eftir fæðulítinn vetur. Ennfremur er reytingur af stöngum lausar í maí, en það gengur hratt á þetta hjá okkur, ekki síst eftir tilkomu hins nýja glæsilega veiðihúss sem staðsett er rétt ofan Stöðvarhylsins, á bakka Húsabreiðu. Minnivallalækur er einn besti vorkostur landsins, ekki nokkur spurning. |
| Síðan gæti leiðin legið í Breiðdalinn, en þar er vel varðveitt silungsveiðileyndarmál. Heimamenn þekkja það, að sjóbleikjan byrjar að ganga inn á neðsta hluta silungasvæðis Breiðdalsár þegar í maí og eru þeir oft að sæta lagi, skreppa og taka 10 til 20 stórbleikjur á stuttum tíma. Ofar í ánni, ofan Beljanda, er síðan mikill og vænn staðbundinn urriði í ánni sem kemur grimmur undan vetri. Það eru lausar stangir í Breiðdalnum í mai og júní og einstaklega gott verð þá í hinu glæsilega nýja veiðihúsi við Eyjar. Í fyrra var vorveiðin upp á um 350 silunga og var þó aðeins staðið naumt við og nánast eingöngu um helgar. Má af því sjá hver veiðivonin er. |
 |
Hvolsá-Staðarhólsá komu nokkuð vel út í fyrra, en voru þó illa stundaðar þegar á leið. Það var synd, því menn urðu varir við óvenjumikinn lax í ánum um haustið. Bleikjuveiði slapp vel fyrir horn miðað við að aflabrestur var víða og var reyndar ágæt bleikjuveiði strax um vorið í maí, og þær voru stærri, flestar 1 til 3 pund. Þetta eru frábærar bleikjuár með góðri laxavon og kjörstaður fyrir fjölskyldur sem vilja leyfa börnunum að spreyta sig.
Ef við höldum okkur við silungsveiðina, þá byrjar í júní sérlega skemmtileg veiði á Seglbúðasvæðinu í Grenlæk, en menn eru nú sem óðast að uppgötva stórbleikjuna í ánni. Hún er mögnuð, 3 til 6 pund og auk þess talsvert af góðum staðbundnum urriða í bland. Hollin í fyrra voru að taka þetta 15 til 50 fiska, enda getur hún verið dyntótt, og ekki spillir stórbrotið umhverfið og einstakt veiðihúsið. Mörg hollin eru farin, en eitthvað er eftir, einkum eftir 17.júlí, sem er líka góður tími og auk þess getur sjóbirtingur gert vart við sig upp úr því. Sömu sögu er að segja um haustið, eftir að sjóbirtingurinn er genginn, mest er farið, en eitt og eitt holl enn laust, m.a. einn alger moli, hollið 5.-7.október. Fyrstur kemur, fyrstur fær...og ekki má gleyma, áin hefur lækkað í verði frá í fyrra og er hún þó á uppleið á ný.
Yfir í laxinn.....
 |
LAXÁ Í AÐALDAL, NES-VEIÐAR
Laxá í Aðaldal, Nesveiðar, eru nú á okkar snærum eins og komið hefur fram. Þar eru til lausar stangir á tímabilinu 9.-18.júlí, en þetta er góður tími sem hingað til hefur tilheyrt Bandaríkjamönnum á vegum Frontiers. Það er líka dálítið laust í september, sérstaklega á bilinu 10. -19. september, sem er magnaður tími fyrir stærstu laxanna. Laxá í Aðaldal hefur vissulega verið að dala síðari árin, en Nesveiðarnar hafa einhvern vegin haldið sínu furðu vel og veiðin þar hefur dregist hvað minnst saman miðað við önnur svæði í ánni. Þeir stóru eru þar alltaf. |
HRÚTAFJARÐARÁ
Eingöngu eru laus 1-2 holl á topptíma í Hrútafjarðará. 7000 gönguseiði fóru þar út í fyrra sem ættu að gefa einhverja tugi laxa í bónus við villtu gönguna. Það lítur vel út með Hrútuna sem sagt. |
 |
 |
BREIÐDALSÁ
Og síðast en ekki síst þá gæti leiðin enn legið í Breiðdalsá. Gönguseiðasleppingar í fyrra gengu vel fyrir sig og snjóstaða í fjöllum gefur góð fyrirheit. Enn er hægt að næla í lausar stangir uppundir miðjan júlí og seint á veiðitíma er enn slatti af stöngum lausar, en það er oft besti tíminn. Þá kostar veiðiheimilið að Eyjum auk þess minna heldur en á hinum svokallaða "besta tíma". |
LAXA IN NESJUM
Sömu sögu er að segja um Laxá í Nesjum, þar slepptum við 18.000 gönguseiðum og miðað við venjulegar heimtur og náttúrulegar göngur er það ávísun upp á allt að 200 laxa veiði. Miðað við að verð hefur ekkert hækkað eins og víða, þá eru betri kaup vandfundin, enda áin aldrei dýrari en 19.000 krónur á dag og í kaupbæta geta menn vænst þess að fá marga silunga. Tvær stangir eru í ánni og er reytingur laus. |
 |
|