26. maí 2004
Fréttir frá Hvolsá og Staðarhólsá  

Fyrsta hollið í vorveiði í Hvolsá og Staðarhólsá hóf veiði helgina14-16 maí og veiddi áætlega fyrstu klst áður en veðrið setti strik í reikninginn. Fengu strax 12 bleikjur og sögðu að nóg væri af henni í Lóninu, neðsta veiðistaðnum. Síðan hafa tvö holl reynt með misjöfnun árangri, en greinilegt að bleikjan er komin og ætti vorveiðin á geta orðið ágæt ef það fer fram sem horfir.

Veiðihúsið Ársel hefur verið tekið í gegn, enda var þörf á ýmsum endurbótum og er óhætt að segja að gistiaðstaðan sé í alla staði nú mjög góð. Parkett sett á gólf, ný RB rúm og margt fleirra enda var komin tími á nokkrar endurbætur.

VANTAR JEPPA! Veiðiþjónustan Strengir hefur hug á að kaupa jeppa af stærri gerðinni af eldri árgerðum ca 1991-1995 með hugsanleg vöruskipti í huga að hluta eða öllu leyti.

 

Hvolsá og Staðarhólsá
Fallegar sjóbleikjur úr Hvolsá, en veiði er hafin þar.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is