27 . ágúst 2004
Sautján laxar úr Breiðdalsá í fyrradag  

Veiðin gengur framar vonum í flestum laxveiðiám okkar, sérstaklega í Hrutafjarðará sem þrátt fyrir vatnsleysi hefur gefið hátt í 400 laxa! Ef skilyrði verða góð til 20 september er veiði líkur má búast við metveiði þeir.

Breiðdalsá stefnir einnig í metveiði, nú hafa veiðst um 340 laxar og þar af 17 í fyrradag, en annars veiðast að meðaltali 8-12 laxar á dag þar. Veitt verður út september og má búast við að tölur hækki mikið næstu vikur, enda lax ennþá að ganga. Voru að losna 3 stangir 16-19 september og svo í lokahollinu helgina 24-26 september.

Laxá í Nesjum hefur gefið hátt í 100 laxa þrátt fyrir mikið vantsleysi í sumar, en þegar rignir koma góð skot. Sjóbirtingur farin að sjást líka. Stefnir í hátt í 200 laxa enda veitt út september, sem yrði frábær veiði fyrir þessa tveggja stanga á.

Hann er á í Krókastreng í Breiðdalsá!.

Veiði á Nesveiðum í Laxá í Aðaldal er meiri en sl ár, yfir 200 laxar hafa veiðst og stefnir í að svæðið haldi sinni meðalveiði þetta árið. Ágæt veiði af stórlaxi hefur veiðst þar að vanda, og verður spennandi að sjá hvort stóru hængarnir fara að taka núna í september

Seglbúðasvæðið í Grenlæk hefur gefið um 600 silunga, svipað og allt sumarið í fyrra, svo greinileg aukning verður þar á ferðinni þegar veiði lýkur í október.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is