Nóg til af seiðum!
6. mars 2004

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum kom upp nýrnaveiki í nokkrum seiðaeldisstöðvum og varð að slátra meðal annars seiðum af stofni Breiðdalsár og Hrutafjarðarár. Enn þar sem megnið af seiðum okkar er alið í öðrum seiðaeldisstöðvum hefur þetta lítil áhrif á áætlanir varðandi stórauknar sleppingar í þessar ár vorið 2004.

Til ráðstöfunar eru ennþá 150.000 gönguseiði í Breiðdalsá og að hluta í Laxá í Nesjum, sem er tvöföldun frá fyrri sleppingum. Í Hrútafjarðará mun verða sleppt um 10.000 gönguseiðum sem er einnig aukning milli ára þar, svo þrátt fyrir allt lítur vel út með sleppingar.

 

 

 

Laxá í Ađaldal
Klakfiskur úr Breiðdalsá skoðaður haustið 2003. Í þessu keri voru um 25 hrygnur af stærðinni 10-16 pund. Þessar laxar voru veiddir á stöng fyrr um sumarið.

Bók um Hrútafjarðará!

Bókaútgáfan á Hofi sem Gísli Pálsson rekur, hefur gefið út bók um Hrútafjarðará og Síká. Á baksíðu er eftirfarandi kynning á efni bókarinnar:

“Í bókinni er sagt frá veiðistöðum í ánum og gefnar góðar ráðleggingar um veiðiaðferðir. Gerð er grein fyrir fiskinum í ánni, laxi og bleikju, þróun veiðinnar og fugla´lífi. Lengsti kaflinn, þar sem farið er eftir bökkum ánna hyl frá hyl, er eftir Sverrir Hermannsson og er lýsing hans skilmerkileg og krydduð skemmtilegum veiðisögum. Hann leynir ekki hrifningu sinni af ánni eftir margra áratuga kynni, segir m.a.: Hún býr yfir öllum þeim töfrum sem veiðimaður getur framast óskað sér og er vörðuð prýðilegum hyljum og strengjum af fjölbreyttustu gerð.

Matthías Johannessen á tvö kvæði í bókinni sem hafa orðið til á bökkum árinnar.

Gunnar Sæmundsson í Hrútatungu ritar ágrip af sögu veiðifélagsins, og segir í sérstökum kafla frá bæjum og búaliði í nágrenni árinnar í fortíð og nútíð. Loks er þáttur eftir Sigurð Má Einarsson sérfræðing á Veiðimálastofnun um lífríki ánna og nýtingarmöguleika þeirra í framtíðinni.

Bókin er prýdd fjölda mynda af veiðistöðum og bæjum í Hrútafirði en í lok hennar eru ný kort yfir báðar árnar þar sem veiðistaðir eru merktir inn á kort.”

Þann 29. Febrúar sl. hélt Veiðifélag Hrútafjarðarár og Síkár útgáfuteiti í Gistihúsinu Staðarflöt vegna útgáfu bókarinnar. Hér eru nokkrir gesti sem hafa aðstoðað við gerð bókarinnar, frá vinstri: Gunnar Sæmundsson Hrútatungu, Þröstur Elliðason , Sigurður Már Einarsson fiskifræðingur, Sverrir Hermannsson, og Gísli Pálsson sem gaf bókina út. Bókin er til sölu í öllum helstu bókaverslunum og einnig hefur Gísla hana til sölu í síma 452 4477.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is