7 .  desember 2004
Salan hafin fyrir 2005  

“Veiðisumarið 2004 var frábært í okkar ám og var um metveiði að ræða í flestum laxveiðiám okkar, eða í Hrútafjarðará, Breiðdalsá og Laxá í Nesjum þar sem veiðin margfaldaðist í þeim öllum frá fyrra ári. Er það engin tilviljun og má þakka að töluverðu leyti öflugu ræktunarátaki okkar undanfarin ár sem er að skila þessarri miklu veiðiaukningu milli ára. Stórauknar seiðasleppingar undanfarin ár hafa ekki verið settar út í verðlagið nema að litlu leyti fyrr en þær hafa sannað sig. Því eru töluverðar hækkanir óhjákvæmilega fyrir sumarið 2005 í þessum ám til að hægt sé að standa nú undir kostnaði við þessar sleppingar. 

Önnur veiðisvæði hækka óverulega milli ára og að mestu í tengslum við verðlag eða rúmlega það, nema Hvolsá og Staðarhólsá hækkar í fyrsta sinn í sex ár vegna endurbóta á veiðihúsinu þar. Góð aukning var  þar á laxveiði eða tæplega 80 laxar og sjóbleikjuveiðin stendur alltaf  þar fyrir sínu.


Fyrsta sumarið okkar í Nes- og Árnesveiðum í Laxá í Aðaldal var ánægjulegt. Þarf að fara nokkur ár aftur í tímann til að finna þar eins mikla veiði og árið 2004 eða  375 laxar á land þar. Að vanda veiddist mjög vel af stórlaxi og er hlutfall hans óvíða meira á landinu en á þessu svæði. Við munum áfram bjóða stangir á bilinu  1  -17 júlí og frá 28 ágúst til 18 september á þessu veiðisvæði fyrir næsta sumar.

Nýtt! Eitt best geymda leyndarmálið í laxveiði er Selá í Álftafirði . Þar var veidd í fyrsta sinn skipulega sl. sumar og fungust 108 laxar en þó var veiði eingöngu stunduð  um helgar. Er þar um að ræða náttúrulegan stofn árinnar, en einnig er stefnt að því að hefja seiðasleppingar þar næstu árin. Strengir munu nú hafa Selá í umboðssölu á hóflegu verði, líklega ein bestu kaupin í laxveiði á landinu þar í boði.

 

 

 

Seglbúðasvæðið í Grenlæk nánast tvöfaldaði veiði sína á milli ára eða í rúmlega 1.000 fiska. Aukning var að mestu í sjóbirting og greinilegt að stofninn er í mikilli uppsveiflu á svæðinu.

Minnivallalækur er alltaf vinsæll enda urriðinn þar óvenju stórvaxinn, og frábært nýtt veiðihús alveg á árbakkanum  gerir þetta að einstakri perlu.

Salan er hafin fyrir 2005 þó svo að söluskrá okkar sé ekki komin út, en hún verður  send út síðar í mánuðinum . Virðist sem eftirspurn sé meiri en nokkru sinni fyrr og er veiðimönnum ráðlagt að hafa samband sem fyrst til að fá nánari upplýsingar.

 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is