Frábæru veiðisumri lokið í Breiðdalsá!

5.október 2005

Breiğdalsá
Sjóbleikjuveiðin hefur aldrei verið betri í Breiðdalsá! Hér er ein af þeim stærri þetta sumarið, sem tók hjá laxveiðimanni í Malarsveig, en hann hélt fyrst að lax hefði tekið!
Breiğdalsá
Nokkrir starfsmenn Strengja í Veiðihúsinu Eyjar, ásamt gestum kampakátir í lok vertíðar eftir frábært sumar!


Óhætt er að segja að ég er í skýjunum yfir frábærum árangri í Breiðdalsá þetta sumar. Metveiði hvernig sem á það er litið, bæði í laxi, sjóbleikju og urriða! En skoðum tölurnar betur upp úr veiðibókum:

Samtals veiddust 814 laxar sem er aukning um 114 laxa frá fyrra sumri. Þar af hefur verið sleppt aftur 319 löxum sem gerir um 39% hlutfall veitt og sleppt, þrátt fyrir að ekki sé skylda að veiða og sleppa laxi í Breiðdalsá.  Hlutfall stórlaxa er um 15% sem er bara gott miðað við flestar aðrar laxveiðiár þetta sumarið, þar sem hann hefur verið óvenju liðfár í flestum ám. Listi yfir stærstu laxar er eftirfarandi:

Enrique Farre  frá Spáni veiddi 29 ágúst 94 cm hrygnu sem vóg 8.5 kg á Svartan Toby, var sleppt aftur.  

Richard Arnold  frá Bretlandi veiddi 10 ágúst 94 cm hæng sem vóg 8.4 kg á Rauðan Frances, var sleppt aftur.  

Hubert Zehnder  frá Swiss veiddi 22 ágúst 93 cm hrygnu sem vóg 8.1 kg á Svarta Frances, var sleppt aftur.

Friðþjófur K. Eyjólfsson  veiddi 23 júlí 92 cm hrygnu sem vóg 7.5 kg á Svartan Toby.  

Sjóbleikjuveiðin var einnig frábær, en færðar eru til bókar 1.202 bleikjur sem er metveiði eftir því sem ég kemst næst. Mikið veiddist á vormánuðum maí og júní, en minna eftir það. Reyndar var ástundun mun minni yfir sumarmánuðina, en veiðin tók svo kipp er veiðiálag jókst aftur í september. Vekur þetta athygli þar sem almennt hefur sjóbleikjuveiði dalað á landinu í ár og hugsanlega er Breiðdalsá með mestu sjóbleikjuveiðina í ár, en það skýrist væntanlega fljótlega!

Það veiddsut 649 urriðar, flest allir staðbundnir, en nokkrir sjógengnir í bland með. Er það líka mesta urriðaveiði árinnar til þessa. Mest veiðist af honum fyrir ofan fossinn Efri-Beljanda og neðarlega í svokölluðum Skipakíl.

Samtals veiddust því 2.665 fiskar í Breiðdalsá sumarið 2005!


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is