Vatnasvæði
Strengja eru eins og venja er í skýrslu
veiðimálastofnunar ár hvert. Vert
er að minn á frábært bleikjusvæði,
Staðahólsá og Hvolsá sem
voru í níunda sæti yfir flestar
bleikjur veiddar á vatnasvæðum landsins
með þúsund sléttar árið 2004,
allt sjóbleikjur. Einnig veiddist þó nokkuð af
laxi eða 80 og 28 urriða slæddust með.
Tölfræði sögunar segir okkur
að kúrfan er að rísa og styrkir það okkar
trú að veiðin verði enn meiri í sumar
bæði af laxi og bleikju. Ekki er búist
við aukningu í blessuðum urriðanum
enda eru 28 stk sögulegt met í það minsta
síðustu 20 árin eða svo. Eitthvað er
laust af leyfum og frekari upplýsingar um árnar
má finna á síðunni.
Einnig er gaman að skoða söguleg gögn
yfir Breiðdalsá en 549 urriðar veiddust
sumarið 2004 sem er met. 881 bleikja er mikil
veiði sögulega séð og 700 laxar
er gríðarlegt stökk upp á við.
Miklar vonir eru bundnar við stórfiskagöngur í ár
og ekki kæmi á óvart ef sá stærsti
kæmi á land í Breiðdalnum í sumar.
Ein og ein stöng er laus í Breiðdalsá.
Hrútafjarðará var einstök árið 2004
með 631 lax, met ár og allt á flugu.
210 laxa per stöng yfir sumarið gerir Hrútu
að einni aflahæstu fluguveiðiá landsins.
Uppselt er í Hrútafjarðará.
Um aukning stangveiddra laxa
milli árana
2003 og 2004 má þetta segja: Í Breiðdalsá veiddust
202 laxar árið 2003 og er sú tala í hærra
lagi yfir sögulega veiði en sumarið 2004
veiddust 700 laxar sem er aukningu um 247% milli ára.
Sama má segja um Hrútafjarðará en þar
veiddust 164 laxar sumarið 2003 en 631 laxar á 3
stangir sumarið 2004 eða 285% aukning milli ára. |