Stórlaxar

11.ágúst 2005

Komu 15 laxar í gær 10 ágúst í Breiðdalsá sem er besti dagurinn þar, þrátt fyrir lítið vatn...og stærsti laxinn veiddist í gær, lúsugur hængur 94 cm og ca 8.4 kg, en honum var sleppt. Breski veiðimaðurinn Richard Arnold fékk hann í Neðri-Beljanda. Verið stórlax að ganga sl viku, nokkrir á dag 5 kg eða stærri og fer Breiðdalsá að skríða í 200 laxa í dag eða morgun.

Sama tala ca í Hrútu, góður gangur , veiðimen í morgun með 6-8 laxa og nýr fiskur að koma inn. Þar af veiddist í morgun ein stór hrygna sem var lúsug en var sleppt aftur í ána.

Grenlækur að koma inn með sjóbirting, Erlendur bóndi á Seglbúðum telur jafnvel að meira sé komið af sjóbirting en á sama tíma í fyrra í ánna, þó veiðin sé upp og niður.

Breiğdalsá
Veiðikona með lax af Skammadalsbreiðu sem er neðarlega í Breiðdalsá og hefur verið besti veiðistaðurinn í ánni.
Laxá í Nesjum gefur einn og einn lax þrátt fyrir vatnsleysi og hér er tilvitnun og mynd frá veiðimanni sem er nýkomin þaðan

Frá veiðimanni

Þrátt fyrir allt er fallegt í nesjum ,og tíminn fljótur að líða .

Til að gleðja augað sendi ég þér fallega mynd úr Ármótahyl ,11 punda hrygna nýkomin á land.

Kveðja Sigurjón

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is