Minnivallalækur
gerir það gott
Góð veiði var í Minnivallalæk
frá morgni föstudags til hádegis
sunnudag er holl númer tvö í vor
veiddi í læknum. Var þar hópur
að koma í fyrsta sinn. Forsvarsmaður
hópsins var Páll Ágúst Ólafsson
og gefum honum orðið: “ Flestir fiskana tóku
við botninn og vorum við því mikið með sökklínur
( type II ) eða hraðsökkvandi enda á flotlínurnar. Kúluhausar
sem við fengum á voru Rjúpan (svört
og brún, mynd af henni á veidi.is.)
, hún gaf 4 eða 5 fiska, Killer, og aðrir
svartir litlir kúluhausar. Einnig kom
mikið á svartan nobbler, nokkrir á black
ghost og collie dog (Afbrigði sem ég kalla
kvikindið því hann er í tveimur
hlutun, fremri hlutinn er áltúpa, spotti
sem er hnýtt í öngul no. 4 . Svartur
marabúi hnýtttur eftir endilöngu
bakinu þannig að flugan endi í því að vera
svona 15 cm)”.
Samtals fengu þeir 34 fiska, allt að 3.5
kg, meðalþyngd var um 1,5 kg svo þetta
hefur verið mikið fjör.
|
 |
| Kuldalegt um að litast en
veiðin ótrúlega góð. |
|