Enn er nýr lax að koma í Laxá í Nesjum og tveggja daga hollið sem lauk veiðum í dag náði 7 löxum. Var það víða um ánna og greinilegt að enn er fiskur að ganga, og einnig var vart við sel í ósnum sem er óvenjulegt, sem bendir til að fiskur sé þar á ferðinni líka. Farið er að bera á sjóbirting í aflanum, en fyrir tveim árum veiddist óhemjuvel af honum um haustið.
Veitt verður út september og nú bjóðast veiðileyfin með sérstökum afslætti eða á kr. 10.000 stangardagurinn!
|
 |
| Þessi stórlax veiddist seint í september fyrir nokkurm árum í Laxá í Nesjum |
|