Nýtt met í Breiðdalsá!

14.september 2005

Í dag fór Breiðdalsá yfir 700 laxa með 17 laxa dagsveiði sem þýðir að 710 laxar eru komnir þar á land. Metið er þar með fallið frá því í fyrra sem var 701 lax! Búast má við að veiðin nái 800 löxum eða meira, en veitt er út mánuðinn. Stórlax sleit hjá veiðimanni í Tinnu í dag eftir langa viðureign og var fiskurinn talin vel yfir 10 kg að þyngd. Einnig hefur bleikjuveiðin tekið kipp eftir að hollið sem er að veiða í laxinum fór að stunda bleikjusvæðið líka, t.d. fengust 50 bleikjur í fyrradag og um 42 stk í dag plus 22 urriðar og meira að segja fékkst einn lax þar líka við Grjóttangana!

Breiğdalsá
Komið að löndun í Gljúfrahyl

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is