Breiðdalsá er komin í 25 laxa og lax að ganga á hverju flóði, bæði stórlax og smálax. Stærstu eru 5-6 kg en mun stærri hafa sést í ánni. Er þessi veiði margfalt meiri en á sama tíma í fyrra sem var þó metveiði með 700 laxa, svo það lofar góðu.
Nesveiðar í Laxá í Aðaldal eru með 22 laxa, flesta stóra að vanda, hefur aðeins hægst um eftir góða byrjun þar.
Hrutafjarðará er komin með 12 laxa, flesta stóra og er þetta á eðlilegu róli miðað við árstíma, og búast má við að smálaxinn fari að láta sjá sig hvað úr hverju.
Sela í Álftafirði hefur fengið nokkra laxa, en Laxá í Nesjum hefur lítið verið stunduð og einn lax veiðst þar. Enda eru þær báðar síðsumarsár og verður spennandi að fylgjast með þeim í sumar. Rigning mundi gera þeim gott þar sem vatn er orðið lítið í þeim.
En laxinn er komin strax í Hvolsá og Staðarhólsá og hafa sést bara nokkuð víða, enda gott vatn í ánum. Nokkrir hafa veiðst, kanski er topplaxveiðisumar þar í vændum?
|