Laxá í Aðaldal – Nesveiðar

15.júní 2005

Óhætt er að segja að fá veiðisvæði bjóða upp á jafnmikla stórlaxavon og Nes- og Árnesveiðar í Laxá í Aðaldal. Margir hafa landað þeim stærsta á ferlinum við bakka Laxár.

Laxveiðin þar jókst árið 2004 þrátt fyrir að heildarveiðin í Laxá hafi verið minni en oft áður. Veiðin var 947 laxar í allri ánni og þar af var 542 löxum aftur sleppt sem er 57,2% af heildar veiðinni, 70,9% af öllum stórlöxum var sleppt aftur. Veiðin í ánni hefur dalað mikið með árunum en ekki er hægt að segja það sama um Nesveiðar sem Strengir leigja að hluta. Þar hefur hnignunin verið mun minni og sum árin engin.

Nesveiðar gáfu 375 laxa árið 2004. Meðalveiði áranna ´74 og ´04 á svæðinu eru 336 laxar og því var veiðin 2004 um 11,8% meiri en í meðal ári.

Ekki þarf að taka fram að aðstaðan og umhverfi árinnar er einstakt (sjá myndir undir “veiðisvæði”). Töluvert er laust í júlí og nokkrar stangir í september.

Hlutfall veiddra laxa á Nesveiðum var 39,6% af allri veiði í ánni sumarið 2004. Til samanburðar var hlutfallið 18,1% að meðaltali milli áranna 1974 og 1993. Milli áranna 1994 og 2004 var hlutfallið orðið 29,6% og aldrei hærra en árin 2003 og 2004 eða 35,9% og 39,6%. Þannig sést að þótt önnur svæði dali þá halda Nesveiðar sér mun betur.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is