Nesveiðar með stærstu laxa sumarsins?
|
|

|
| “Nokkrir af þeim stórlöxum sem veiddust á Nesveiðum í júlí!” |
|
Veiðin er núna mun betri í Laxá í Aðaldal en í fyrra og Nesveiðar eru engin undantekning frá því. Tæplega 190 laxar hafa veiðst þar í sumar og einn besti tíminn eftir, enda verður veitt þar til 20 september. Og líklega eru stærstu laxar landsins eru að koma þar á land þessa dagana! Fyrir stuttu veiddist 110 cm langur lax sem var sleppt aftur, en var viktaður af leiðsögumanni áður og stóð viktin í 25 lb eða um það bil 11.5 kg ! Annar jafnþungur hefur líka veiðst sem var líka viktaður og síðustu vikuna hafa fjórir aðrir laxar um 10kg veiðst á svæðinu. Verður spennandi að sjá framhaldið en september hefur venjulega gefið þá marga mjög stóra á Nesveiðum. |
|
Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|