Frábært sumar í Hrútafjarðará

16.október 2005

Frábært veiðisumar er liðið í Hrútafjarðará. Veiðibókin gefur upp 512 laxa sem er þriðja besta laxveiðisumarið að mér skilst í sögu árinnar. Náði ekki metveiðinni frá því í fyrra sem var 630 laxar en frábær veiði engu að síður.
Mjög áberandi hvað hlutfallsleg aukning er á á veiði í nágrenni við seiðasleppitjörnina og engin spurning að hún er að skila góðu. Þó er góð veiði víða annarsstaðar og greinilegt að náttúrulegi stofn árinnar er í góðu lagi. Um 10% aflans er stórlax, annars var vænn smálax mjög áberandi í aflanum. Stærstu laxar voru 8-8,5 kg svo engin 10 kg náðist þetta árið þótt vitað væri að einhver slík tröll voru á ánni að talið er. Klakveiðin gekk vel og voru 15 hrygnur teknar í klak og eitthvað af hængum, svo áframhaldandi fiskrækt er í örruggum farvegi.

Bleikjuveiðin var í minna lagi, en 158 bleikjur eru færðar til bókar. Er fullvíst að ekki er þó allt sem fer í veiðibókina sem veiðist af henni, en þó ljóst að hún hefur oft verið í meira magni. Er það þróun sem virðist vera víðar á landinu þetta árið.

Hrśtafjaršarį
Við Ullarhvammshyl í Hrútafjarðará.

Seiðasleppingar gengu vel sl vor og engin ástæða til annarss en að vera bjartsýn með næsta ár!


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is