Mokveiði í Hrútafjarðará og góður gangur í Breiðdalsá

17.ágúst 2005

Frábær veiði hefur verið í Hrútafjarðará undanfarna daga eftir að vatnsmagn jókst og síðasta tveggja daga holl var með 49 laxa! Sögðu veiðimenn að lax væri um alla á og bjuggust þeir við að næstu holl ættu að gera það líka gott. Tæplega 300 laxar eru komnir á land og nú fer að vera spurning hvort áin nái jafnvel metveiðinni frá síðasta sumri sem var 630 laxar, en veitt verður út september.

Breiðdalsá gengur líka vel, um 260 laxar komnir á land og fiskur vænn í bland við smálax.

 

Breiğdalsá
Fjör í Hrútafjarðará

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is