Laxá í Nesjum komin inn!

18.ágúst 2005

Loksins rigndi við Laxá í Nesjum í gær og í fyrradag, og þá var ekki að sökum að spyrja. Strax í gærmorgun var sett í 8 laxa en 5 náðust á land.
Síðan fengust 3 laxar eftir hádegi í gær, þar af 6 kg stærstu fiskar. Er fiskur komin um alla á og gæti orðið fjör á bökkum árinar næstu daga og vikur. Samtals eru komnir þá 45 laxar á land í Laxá í Nesjum.

Nokkur holl eru ennþá laus í ánni sem hægt væri að fá á sértilboði! Fyrstur kemur fyrstur fær!

Laxá í Nesjum
Guðjón veiðivörður og leiðsögumaður við Laxá í Nesjum glímir við lax þar í gærmorgun.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is