Frá
Jón Eyfjörð
Jæja, þá erum við komnir í bæinn eftir ánægjulega
dvöl við Minnivallalæk. Við vorum nú frekar latir
við veiðar, enda aðstæður ekki upp á það allrabesta,
rok, rigning, sól og skítakuldi.
Við settum í nokkra urriða, suma stóra og aðra minni
en okkur tókst samt ekki að landa nema 3 . Talsvert var af fiski
við Arnarhólsflúð og Hólmakvíslum og að sjálfsögðu í Stöðvarhylnum.
Hann var reyndar lítið stundaður, þar sem við notuðum þessa
fáu tíma sem við eyddum á degi hverjum við veiðar, á öðrum,
náttúruvænni veiðistöðum. Við misstum ágæta
fiska, bæði við Arnarhólsflúðina og í Hólmakvíslum
og auk þess slapp einn stór sem tók á flugu sem
nefnd er Garðurinn (stór streamer, hnýttur úr afgangsfjöðrum
alls konar fugla í Húsdýragarðinum) á Húsabreiðu.
Urriðinn var að taka mjög grannt og allir þeir fiskar sem
landað var voru þannig að flugan hékk á lítilli
roðtætlu í eða við neðri skolt.
Við erum hæst ánægðir með túrinn, aðstaðan
er frábær og við skemmtum okkur konunglega. Ég hef
mikinn áhuga á að komast aftur í lækinn, þegar
fer að hlýna meira og mun setja mig í samband við þig þegar
fer að vora meira.
|
|