88 fiskar á land í gær í Breiðdalsá!

19.mai 2005

Veiðin í Breiðdalsá hefur verið brokkgegnd enda tíðarfar afar erfitt undanfarið þar fyrir austan. Sumir gert það ágætt en önnur holl minna. En nú virðist allt vera að slá inn því í gær veiddust hvorki meira né minna en 81 sjóbleikja og einnig átta sjóbirtingar. Einungis var veidd þá með 2-3 stöngum svo þetta er frábær dagsveiði. Stærstu sjóbleikjur voru allt að 2.5 kg!

Minnivallalækur hefur verið erfiður undanfarið enda kalt í veðri og urriðin ekki komin á mikla hreyfingu, en flest holl fá þó nokkra fiska. Stærsti urriðin er 4 kg sem veiðst hefur.

Frést hefur af ágætri bleikjuveiði í lóninu í Hvolsá og Staðarhólsa síðustu helgi en nánari fréttir hef ég ekki.


Veitt við Grjóttangana í Breiðdalsá nýlega er aðstæður voru þokkalegar.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is