Og
nánari fréttir af veiðimanni sem
var að koma úr Hvolsá og Staðarhólsá:
"Ég var svo heppinn að vera boðið af
vinningshafanum vestur og var þetta hin besta
skemmtun. Þeir sem voru um hvítasunnuna
veiddu ekki nema 3 fiska en við hinsvegar veiddum
26 stykki af velhöldnum bleikjum fyrir neðan
stífluna, þær voru þar á flakki
vel á undan straumnum. Ég sá reyndar
fisk fyrir ofan fyrsta daginn en síðan
ekki meir. Það var næturfrost og
hitinn fór ekki yfir 4 gráður í norðannæðingnum á þriðjudag. Þetta
var allt á flugu nema 3 á spún.
En við skemmtum okkur vel þrátt
fyrir kuldan og það er aðalatriðið."
Kveðja,
Ragnar H. Björnsson
|
 |
| Hvolsá og Staðarhólsá eru
fjölskylduvænar veiðiár. |
|