Laxá í Aðaldal
var opnuð í norðan garra og
rigningu í morgun og settu Laxamýrabændur í fjóra
laxa og lönduðu þar af tveimur,
9 og 13 punda. Tóku laxarnir Sunray
Shadow í Sjávarholu og Black
Sheep túpu í Bjargstreng. Orri
Vigfússon var á staðnum og
sagði hann erfitt að átta sig á því hvort
mikið eða lítið hafi verið af
laxi því veður leyfði
ekki að skyggnt væri af nokkru viti.
Hins vegar geta viðskiptavinir
Strengja glaðst yfir því að sá óvenjulegi
atburður gerðist, að lax var mættur
strax í opnun á Nes- og Árnes
veiðunum. Einn þeirra er opnaði ána í morgun
setti í fallegan tveggja ára
bolta í Þvottastreng. Að vísu
lak sá silfraði af, en það var
ekki heila málið, heldur að hann
er mættur á svæðið óvenju
snemma og veiðimaðurinn fékk
mikið útúr glímunni!
|
 |
| Hann er á í Kirkjuhólmakvísl í Nesveiðum! |
|