VERTÍÐIN FER VEL AF STAÐ

22.júní 2005

Laxá í Aðaldal

Fallegar bleikjur úr Ytri-Grjóttanga í Breiðdalsá, en þar
hefur verið frábær sjóbleikjuveiði.

Veiðin er að byrja á afar lofandi hátt víðast hvar, bæði í lax- og silungsveiði. Svæði okkar eru þar engir eftirbátar nema síður sé og spurning hvort að silungsveiðin í Breiðdalsá sé ekki hreinlega í fremstu röð. Vorveiðin þar er upp á 700 bleikjur og rúmlega 200 staðbundna urriða þrátt fyrir gífurlega erfið skilyrði í mai sem var fantakaldur eins og menn muna. Laxveiðin hefst í ánni 1.júlí og hafa laxar sést á víð og dreif í neðanverðri ánni síðustu daga og Súddi, staðarleiðsögumaður í Breiðdalnum er meira að segja búinn að sjá ‘ann í Bryggjuhyl í Tinnu. Sjö hafa farið teljarann í Efri Beljanda. Allt lofar þetta góðu fyrir komandi vertíð.

Seglbúðasvæðið í Grenlæk var opnað þann 18.júní og veiddi fyrsta hollið 50 bleikjur sem flestar voru á bilinu 2 til 4 pund. Þetta er frábær byrjun, bleikjan hefur verið í mikilli sókn síðustu ár og menn eru auk þess farnir að kunna helstu tæknina. Bleikjan er og hefur alltaf verið dyntótt, en menn hafa lært trixin og veiða betur. Við eigum eitthvað af lausum stöngum í ánni, sjóbirtingstíminn er reyndar mikið til farinn, en það eru glufur á bleikjutímanum og ekki má gleyma því að allt sumarið er drjúg urriðaveiði.


Minnivallalækur hefur tekið vel við sér eftir einstaklega erfiðan mai-mánuð. Miklir vorkuldar líkt og voru í mai eru ekki heppilegir lengst uppi í Landssveit og veiðin var treg. En þetta er allt að koma, enda er fiskurinn til staðar, og heildartalan er núna um 200 fiskar. Einn útlendingur sem var hjá okkur fyrir skemmstu var með 31 urriða á fjórum dögum og notaði bæði púpur og þurrflugur niður í númer 22.

Hvolsá og Staðarhólsá hafa verið illa nýttar, en samt eru komnar um 80 bleikjur á land og veiði verið góð í Lóninu neðst á veiðisvæðinu, en einnig hefur orðið vart við fiska í einstökum hyljum þar rétt fyrir ofan, t.d. í Brunnafljóti.

Ef við vindum okkur aftur að laxasvæðum Strengja, þá eru gönguseiðin í sleppitjörnum við Hrútafjarðará sem óðast að búa sig til brottfarar. Metveiði var í Hrútunni í fyrra og var t.d. tjörn neðan þjóðvegar að skila góðri veiði, en stórveiðin snérist ekki eingöngu um gönguseiðasleppingarnar því ljóst var að náttúrulegi stofninn var einnig að skila sterkum árgangi. Áin var kjaftfull af laxi á síðasta veiðidegi og þá veiddist m.a. grálúsugur 18 punda hængur sem fór að sjálfsögðu í undaneldið. Hrútan opnar 1.júlí, líkt og Breiðdalsá, Selá í Álftafirði og Laxá í Nesjum, en þær tvær síðastnefndu eiga að skila a.m.k. 200 löxum hvor í sumar á tvær dagstangir. Nes- og Árnessvæðin hafa hins vegar þegar verið opnuð, þar hófst veiði í gærmorgun líkt og neðar í Laxá. Það skemmtilega var, að menn settu strax í lax þar efra, sem er fremur óvenjulegt hin seinni ár, en lofar að sjálfsögðu góðu fyrir vertíðina. Laxinn, sem var í Þvottastreng, slapp að vísu, en það er vitneskjan um að hann sé komin sem er svo dýrmæt.

 

Laxá í Aðaldal

Stórrurriða sleppt aftur í Djúphyl í Minnivallalæk, en hann tók þurrflugu númer 18! Veiðimaðurinn er norskur, enda eru þeir margir snillingar í þurrfluguveiði.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is