Nokkrir
erlendir veiðimenn voru í Tungulæk á vegum
Strengja í vikunni og var veiðin góð. Á tveimur
og hálfum degi veiddi hópurinn 92
birtinga, mest spræka 3 til 5 punda geldfiska,
en einnig slatta af stærri hrygningarfiski
og var sá stærsti líklega sá allra
stærsti á þessu vori. Var það hængur,
92 cm. Annar fiskur, 80 cm og einnig hængur,
veiddist líka og voru báðir í ágætu ásigkomulagi.
Sá stærri hefur ugglaust verið um
eða yfir 20 pund sl haust.
 |
| Fallegur birtingur úr
Faxa! |
|
 |
Örn Sigurhansson
leiðsögumaður og veiðikonan
Sarah með þann stóra. |
|
Það var kona, Sarah Ingram Hill, sem veiddi tröllið á flugu
neðst í Faxanum. Veiðin gekk í bylgjum, lá stundum
niðri, en þess á milli komu miklar tökuhryðjur, t.d. á miðvikudagsmorguninn,
er veiðimenn tóku 25 fiska í beit í Holunni. Annars
var fiskur um allt hið hefbundna vorsvæði, frá svokölluðum
Gussa og niður í Frystikistu, sem er neðst í skilunum við Skaftá.
|