Lifnar yfir Minnivallarlæknum

24.ágúst 2005


Hann er á í Djúphyl í Minnivallalæk

Veiðin hefur verið erfið yfir mitt sumarið í Minnivallalæk en nú virðist vera að lifna við aftur miðað við frásagnir veiðimanna sem hafa verið að koma úr læknum í vikunni, og fara hér á eftir:

Sæll Þröstur.

Var að koma úr Minnivallalæk og langar að byrja á að þakka fyrir mig. Mér fannst allt við þetta dæmi alveg meiriháttar og ég er mjög hrifinn af ánni og frábærri aðstöðu og get varla beðið eftir að komast aftur.

Takk aftur.
Kveðja Kristján Benediktsson 19 ágúst 2005.

Sæll

Langaði bara að láta vita að ég setti í 5 fiska á 4 tímum, stæðst 4 - 5 pund og öllum sleppt nema einum um 1,5 pund þar sem flugan reif tálknin á honum.
Misstum 2 bolta og braut meðal annars annar fiskurinn stöngina. Hinir sem voru fös - sunnudag settu saman langt í 5 - 6 fiska að ég held og stæðst um
5 pund. Þeir voru svaka ánægðir með túrinn.

Kveðja, Páll ágúst Ólafsson 22 ágúst 2005.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is