Nesveiðar loka með stæl!

24.september 2005

Um 300 laxar veiddust í Nesveiðum í Laxá í Aðaldal í sumar, sem er aðeins minni veiði en sumarið 2004. En óhætt er að segja að ekkert laxveiðisvæði á landinu geti komið nálægt því með fjölda stórlaxa sem veiðst hafa í sumar.
Hátt í 30 fiskar eru um 10 kg eða stærri og sá stærsti sem vitað er að veiðst hefur á landinu í sumar kom þar einnig á land. Sá var um 13 kg og veiðimaður var hinni kunni veiðimaður Art Lee.

Veiði lauk sl mánudag og voru það nokkrir landeigendur sem lokuðu veiðisumrinu á þessu svæði. Settu þeir í 12 laxa og lönduðu 6, en meðalþyngdin var með ólíkindum! Stærsti fiskurinn var áætlaður milli 11-12 kg, annar 10 kg sem var einnig maríulax veiðimannsins! Var þessi veiði öll á Knútsstaðatúni, þar sem mikið af laxi hefur safnast saman í haust.

Þess má geta að Veiðiþjónustan Strengir getur boðið Nes-og Árnesveiðar aftur á næsta ári, en nánari upplýsingar koma síðar.

Laxá í Nesjum
Eiginkonan með lax í örmunum, einn þeirra mörgu sem veiddist á Knútsstaðatúni í haust.

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is