Grenlækurinn genginn aftur!

25.ágúst 2005


Það er líf og fjör í Grenlæk þessa dagana!

Frábærar fréttir berast frá Seglbúðasvæðinu í Grenlæk eins og þessi skilaboð bera vott um. Og eitt holl er laust 30 ágúst til 2 september! Fyrstur kemur fyrstur fær! Og ekkert annað laust þetta árið….

Sæll Þröstur.

Var að koma af Seglbúðasvæðinu í Grenlæknum og þvílík veisla. Eins og þú veist veiddi ég þarna í mörg ár en gaf læknum frí í nokkur ár vegna þess að fiskurinn var orðinn heldur tregur. En nú er öldin önnur maður minn . Þvílíkt og annað eins. Áin er sneisafull af fiski, alveg sama hvar borið er niður. Þegar við fórum rétt fyrir hádegið voru ca. 40 fiskar í Snúningshylnum, ca. 10 í hylnum þar fyrir ofan, 7 undir brúnni, þar var fiskur á Breiðunni, í Landbrotsárhylnum, fullt af fiski í Brúarhylnum niður frá og þannig má endalaust telja. Við veiddum ágætlega og sjónarspilið var snilld .  Hollið okkar leggur hér með inn pöntun fyrir næsta ár, amk 2 daga takk. Þetta var frábært. Takk kærlega fyrir okkur.

Árni Magnússon

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is