Breiðdalsá (Silungsveiði)

25.mai 2005

Mjög góð sjóbleikjuveiði var í Breiðdalsá árið 2004 eða 881. Einnig veiddist töluvert af urriða eða 583. Samtals veiddust því 1.464 silungar árið 2004.

Í ár byrjaði veiðin frekar treglega því veiðimenn gátu einfaldlega ekki veitt vegna óvenjulegs tíðarfars sem einkennt hefur landið í maí. Það var hins vegar eins og við manninn mælt að þegar það kom gott veður þá rótaðist upp bleikja og einn og einn sjóbirtingur í bland. Holl eru að veiða allt upp í 90 silunga á dag þegar hægt er að standa við. Því lofar framhaldið góðu og spáum við því að met verður í silungsveiði í ánni þetta árið með betra tíðarfari. Þegar eru nálægt 500 bleikjur komnar á land og eitthvað af urriða . Eitthvað er laust af veiðileyfum í silung í sumar og ekki verður neinn svikinn af aðstöðunni í Breiðdal.


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax 567 5204 - Gsm 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is