Eldislax?

27.júlí 2005

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum veiddist einn “grunsamlegur” lax nýlega í Breiðdalsá sem hugsanlega gæti verið eldislax. Ekkert er hægt að fullyrða um það, en allt bendir þó til þess. Hreisturssýni af laxinum er á leið til veiðimálastofnunar. Laxinn veiddist í Eyjakrókum sem eru neðarlega í ánni, en nokkuð er af laxi á neðstu stöðum árinnar, sérstaklega rétt ofar eða á Skammadalsbreiðu. Sá lax er úr gönguseiðsleppingum og á ekkert skyllt við “eldislaxinn”. Annars er að frétta af veiði að öll taka hefur dottið niður síðustu 3 vaktirnar, enda mikil sól og svo snöggkólnar á kvöldin. Einnig vegna minnkandi vatns safnast lax saman á örfáum stöðum og tekur illa. En hann spáir vætu um helgina og þá ætti veiði að koma til aftur. Rúmlega 90 laxar hafa veiðst, þar af einn 7,5 kg stærst sem veiddist nú í vikunni. Nokkuð er af stórlaxi í bland við smálax, þar af einhverjir í 10 kg klassanum sem hafa sést en ekki tekið. Reyndar missti einn veiðimaður stórlax í gær sem hann taldi í þeim klassa.

Lax er sagður vel dreifður um Hrútafjarðará en tekur illa. Einnig sést mikill lax fyrir utan ósinn, og í Dumbafljóti sem er neðsti veiðistaðurinn stekkur hann mikið, en fer ekki alltaf upp ánna. Nákvæma tölu hef ég ekki, en ca. 90 laxar væri nálægt réttri tölu. Áin er löngu uppseld, en vegna forfalla var ein stöng að losna 6-8 ágúst! Fyrstur kemur fyrstur fær!

Breiðdalsá
Frá Stapanum í Breiðdalsá.

Selá
Frá Selá í Álftafirði, en þar er vatn orðið mjög lítið.
Selá í Álftafirði og Laxá í Nesjum renna varla og sárvantar rigningu til að veiðin fari í gang. Þó er lax í báðum ánum, meira í Selá en hann bara tekur ekki í þessu litla vatni. Örfáir fiskar hafa því veiðst í þeim ennþá. En það er fljótt að breytast eins og í fyrra þegar vaktin gaf allt að 10 laxa þegar byrjaði að rigna í Laxá í Nesjum í lok júlí.

Lax safnast neðst í lóninu í Hvolsá og Staðarhólsá en vatn er orðið lítið, en eitthvað veiðist af sjóbleikju. Rigning mundi gera gera það gott fyrir þessar ár líka.

Vart hefur verið við sjóbirting á Seglbúðasvæðinu, og ef rignir gæti komið góð ganga líkt og í fyrstu viku ágúst í fyrrasumar, en þá var mikið fjör er stórar göngur komu í lækinn eftir “verslunarmannahelgarigninguna”.

 


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is