Laxá í Nesjum
er tveggja stanga á í fögru umhverfi
við Hornafjörð. Einstakt útsýni
er í allar áttir og gnæfir Vatnajökull
tignarlega yfir svæðinu. Metveiði var í Laxá í Nesjum
eins og búist var við vegna stóraukinna
seiðasleppinga og gaf áin 204 laxa sumarið 2004
sem er meira en tvöföldun frá fyrra ári.
Góðar væntingar eru fyrir árið 2005 í kjölfar
seiðasleppinga og síðan er von á stórlöxum
eftir öflugar smálaxagöngur í fyrra. Á mörgum
stöðum er hægt að sjá lónbúan
vel og getur sú sýn ært óstöðugan.
Urriðaveiðin er sveiflukend en alltaf þó nokkur.
Tvö síðustu ár hafa verið góð þar
sem 459 urriðar veiddust árið 2003
og 233 í fyrra. Veiðitíminn er
frá 1. júlí - 30. september.
Tveir eða þrír dagar eru seldir í senn
frá hádegi til hádegi. Stangirnar
tvær eru einungis seldar saman og látum
við veiðimönnum eftir að skipta
milli sín svæðinu. Þannig
geta veiðifélagar haft ánna útaf
fyrir sig. Boðið verður upp á nýja
og enn betri aðstöðu en áður í íbúð í Meðalfelli
sem er staðsett miðsvæðis ofan
við þjóðveginn skammt frá árbakkanum. Örstutt
er niður að Akurneshyl sem er einn af bestu
veiðistöðum árinnar. Þrjú rúmgóð herbergi
er í íbúðinni og eru rúmin
uppábúin. Stutt er í alla þjónustu á Höfn.
Við viljum benda veiðimönnum á að nokkrar
stangir eru enn lausar í þessa gjöfulu á sem
var með yfir 100 laxa veiði per stöng á veiðitímanum í fyrra. 
|

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.
Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is
|