Stórurriðar í Minnivallalæk

29.september 2005

Nú virðast drekarnir loks vera að fara að taka í Minnivallalæk í lok vertíðar, því um helgina kom sá stærsti sem færður hefur verið til bókar í ánni í ár. Var það fiskur sem vóg tæp 6 kg og veiddist á Arnarhólsbreiðu af amerískum veiðimanni sem heitir Ryan Davey. Sá hefur veitt víða en taldi Minnivallalækinn það besta sem hann hafi komist í varðandi urriðaveiði, ekki endilega vegna fjölda fiska heldur vegna óvenju mikillar stærðar fisksins. Fengust sex fiskar á sunnudaginn þrátt fyrir kulda og erfiðar aðstæður, en annar tæp 5 kg veiddist þó líka.Flugan var harla óvenjuleg sem sá stóri tók, einhverskonar risa straumfluga með kúlur fremst, með nafn sem ég kannast ekki við.

Veiðin lýkur á morgun föstudaginn 30 september, lokatölur koma svo næstu daga úr okkar ám, en stefnir í að almennt hafi árið verið gott í flestum ám okkar, hvort sem um var að ræða lax eða silung.

Minnivallalękur
Ryan með fiskinn stóra áður en honum var sleppt aftur, ansi vígalegur hængur!

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is