2. apríl 2005

Minnivallalækur opnaði í gær

Það var kaldur morgun í Landssveitinni í gær þegar veiðimenn vöknuðu í Veiðihúsinu Lækjamót við Minnivallalæk. Enda var ekki farið út fyrr en eftir kl. 10 til veiða, en þá var hitinn að skríða yfir frostmark. Sá fyrsti kom 7 mínutum síðar á land úr Stöðvarhyl, áætlaður tæp 2 kg.

Var það finnskur veiðimaður sem var að sinn fyrsta fisk á einhenda flugustöng, og fékk hann tvo aðra líka síðar um daginn. Þrír aðrir fengust svo í viðbót, stærst 2,5 kg og 59 cm langur fiskur úr Viðarhólma. Kólnaði svo hreissilega um kvöldið og er vetrarlegt þar um að litast þar án efa núna. Nánari fréttir síðar.

 
Gjúfrahyl
 

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is