Blessaður Þröstur,
Heyrðu það lifnaði heldur betur
yfir veiðinni seinni partinn eftir að við töluðum
saman í gær. Þegar leið á daginn
hitnaði vatnið og fiskurinn fór að elta
flugurnar. Við tókum 5 fiska sem voru
vænir og fallegir frá 1,0-3,0 kg.
Fórum niður fyrir brú og þar
var líka fiskur en við tókum tvo þar
niður frá, í Hesthyl og Vallarstreng
að mig minnir.
Toppurinn var síðan í hádeginu
rétt áður en við hættum
en þá kom einn stór á land í Arnarhólsbreiðunni, áætlaður
4 kg.
Láttu mig endilega vita ef það losna
einhverjir dagar þarna.
Bestu kveðjur,
Ævar
|
|