Mokveiði í Breiðdalsá
31 . ágúst 2005

Það hefur verið líf og fjör á bökkum Breiðdalsár undanfarna daga eftir að veiði hófst með maðk og spún aftur í ánni. Fyrsta vakt gaf 31 laxa eftir hádegi 28 ágúst, allan daginn 29 ágúst fengust 47 laxar og þann 30 ágúst fengust 31 lax.
Mest veiðist á spún og mikið af laxinum er sleppt aftur eða notaður í klak eins og sést á myndinni þar sem ég held á einni hrygnu í plastslöngu á leið í klakkistu.

Nú hafa veiðst yfir 500 laxar í Breiðdalsá sem er töluvert meira en á sama
tíma í fyrra, og drjúgur tími enn eftir enda veitt út september í ánni.

Gjúfrahyl


Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is