Nú á föstudaginn 1. apríl
fer silungsveiðin af stað og á okkar
svæðum opnar Minnivallalækur þá.
Um páskana var borið á veiðihúsið og
málarinn sagði að oft hefði mátt
sjá frá húsinu að “kraumaði” af
fiski á Húsabreiðu í blíðunni.
Mikil fluga var líka, sem er einstakt í marsmánuði.
Vonandi helst blíðan um helgina, en spáin
er reyndar kólnandi.
En glóðvolgar fréttir verða
birta r á vef og fréttablaði okkar
sem sent verður út þ á um
helgina. Ef þú ert ekki á fréttalista
okkar skaltu senda okkur línu. Stefnt verður
að vera með örar fréttir af veiðisvæðum
okkar og öðru sem tengist veiði héðan í frá.
Tímamót! 1 apríl verður
líka tekin í notkun ný og stórglæsileg
heimasíða á www.strengir.is ,
sjá sýnishorn af forsíðu
Minnivallalækjarsíðunnar. Verður þó áfram í vinnslu
næstu daga, lokafrágangur klárast í næstu
viku. |