Frábær sjóbirtingsveiði á Seglbúðasvæðinu!

3.október 2005

Sæll Þröstur

Var að koma úr Grenlæk Seglbúðum, en við vorum þar um helgina, við fengum öll synishorn af veðri allt frá hávaða roki og í blanka logn, grenjandi rigningu eða sól. Veiðin var með besta móti við lönduðum 38. sjóbirtingum en settum í margfalt fleiri en hann tók oft ansi grant, við hirtum slatta en mörgum var sleppt aftur. Stór hluti af veiðinni var 7-10 pund og gat stóri sjóbirtingurinn verið ansi erfiður og einn var sérstaklega erfiður þegar ég var að veiða í einum af stóru hylunum í ánni síðasta morgunnin . Hann tók hjá mér ca.kl.   11.20 og hann stökk hvað eftir annað í fyrstu en eftir ca. 20 mínutur lagðist hann en í stökkvunum höfðu við séð að þetta var bolta fiskur og alveg nýgengin, en eftir 40.mínutur var ég farin að hafa áhyggur ,  því veiði líkur kl 12 og fiskurinn ekkert að gefa sig . En ég vissi af félögunum upp í húsi að taka til fyrir næsta hóp sem var að koma, en kl 12.30 var ástandið þannig að ég var að gefast upp , en fiskurinn gaf sig ekkert og þvældist um hylinn og stjórnaði alveg hvar hann var þótt ég tæki mjög fast á honum . Var farið að hvarla að mér að reyna að rífa úr honum, enda veiðitíminn löngu búinn og ég átti að vera kominn út úr húsi, en rétt fyrir kl.1. barst mér hjálp og eftir dágóða stund tókst okkur að landa honum eftir 1 1/2 tíma bardaga ,  en  þvílíkur bardagi !

Kv.  Jón Jónsson

 

Minnivallalękur
Sendi þér mynd af mér með afla sem ég náði úr einum hylnum á ca. 2. tímum eitt kvöldið .

Veiðikveðjur,
Þröstur Elliðason.

Smárarima 30, Pósthólf 12024 - 132 Reykjavík
Sími/Fax 567 5204 - gsm 660 6890
Netfang: ellidason@strengir.is Vefur: http://www.strengir.is

Smárarimi 30 - 132 Reykjavík - Sími: 567 5204 - Fax: 567 5204 - Gsm: 660 6890 - Netfang: ellidason@strengir.is - Vefur: www.strengir.is