Fyrsta hollið sem byrjar í Nesveiðum í Laxá í Aðaldal byrjar með látum, eftir tvær fyrstu vaktirnar voru komnir sex laxar! Þar af tveir stórlaxar
94-95 cm langir sem var sleppt aftur og áætlaðir 8-9 kg. Hér á myndinni sést annar þeirra, veiðimaður er Óðinn Helgi Jónsson. Laxinn fékkst í Símastreng og tók Snældu, en takið eftir að hann er aðeins leginn, hefur komið fyrir töluverðu síðan!
|
 |
| Óðinn Helgi Jónsson |
|